04.08.04 - 09:50
Hafliði Breiðfjörð
Bosnar til Everton (Staðfest)




Ástralinn Eddy Bosnar varð í morgun þriðju kaup Everton í sumar en leikmaðurinn kemur frá Sturm Graz og gerir eins árs samning við Everton. Bosnar er 24 ára gamall og spilar sinn fyrsta leik gegn Real Sociedad á Goodison Park á laugardag. Bosnar fær ekki atvinnuleyfi í Englandi en mun þó spila í Englandi eftir sérstöku leyfi sem hann fær. Hjá Everton hittir hann fyrir besta vin sinn og landa Tim Cahill sem kom frá Millwall á dögunum.
