Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 04. ágúst 2022 19:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hólmfríður tók fram skóna og spilaði í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vakti athygli að Hólmfríður Magnúsdóttir var í leikmannahópi Selfoss þegar liðið tók á móti ÍBV í Bestu deild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: Selfoss 0 -  0 ÍBV

Hún tilkynnti í fyrra að skórnir væru komnir uppá hilluna þar sem hún var ólétt, hún eignaðist barn í mars með Einari Karli Þórhallssyni.

Nú fimm mánuðum síðar mætt út á völl og spilaði um það bil korter í markalausu jafntefli gegn Eyjakonum.

Hólmfríður lagði skóna á hilluna eftir eitt ár með Avaldsnes í Noregi í fyrra en tók þá fram til að spila með Selfossi í efstu deild á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner