Fotbolti.net
13.09.26 - 20:03
Andri Stefánsson

„Það er ótrúlega gaman að vera í Þrótti í dag“

Auglýsing
Sigurður Egill, leikmaður Þróttar.

Sigurður Egill, leikmaður Þróttar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þróttur tók á móti Njarðvík í seinni leik liðanna í umspilinu í dag. Leikar enduðu með 2-1 sigri Þróttar og þeir eru komnir í úrslitaleikinn á Laugardalsvelli. Fótbolti.net ræddi við Sigurð Egil, leikmann Þróttar, eftir leik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 1 Njarðvík
Hvernig líður þér eftir þennan sigur?

„Bara virkilega vel. Mér fannst við mjög góðir í dag og það er geggjað að vera komnir í úrslitaleik.“

Þið Aron Snær virðist vera farnir að tengja mjög vel saman. Hvernig er að spila með honum?

„Það er geggjað að spila með Aroni. Það er mikill kraftur og dugnaður í honum og hann er duglegur að hlaupa aftur fyrir, þannig að það er auðvelt að finna hann.“

Hvernig fannst þér leikurinn?

„Mér fannst við mjög góðir fyrstu 80 mínúturnar. Síðustu tíu mínúturnar féllum við kannski aðeins of aftarlega og þeir herjuðu á okkur, en við náðum að halda þetta út.“

Varstu stressaður undir lokin þegar þeir fóru að setja meiri pressu á ykkur?

„Já og nei. Mér leið vel allan tímann. Það kom smá fiðringur í magann síðustu fimm mínúturnar en mér fannst við samt vera með þetta.“

Hvernig leggst úrslitaleikurinn á Laugardalsvelli í þig?

„Bara mjög vel. Við mætum tilbúnir og það verður geggjað að spila fyrir framan stuðningsmenn Þróttar. Það var frábær stemning í dag og líka í gær. Það er ótrúlega gaman að vera í Þrótti þessa dagana.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.