Erfið og stór ákvörðun framundan hjá Amin Cosic - „Tengi mjög mikið við báða kosti"

Þetta verður erfið ákvörðun fyrir mig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var keyptur til norsku meistaranna í sumar.

Mynd: Viking Stavanger

Ólafur Garðarsson og Kjartan Henry Finnbogason eru umboðsmenn Amins.

Mynd: Aðsend


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vakti mikla athygli í Njarðvík og var svo frábær hjá KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amin og Arnar hafa rætt saman.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Samdi við Viking til árið 2030. Hann er einn dýrasti leikmaður sem seldur hefur verið úr Bestu deildinni.

Mynd: Aðsend

Frábær í stöðunni einn á móti einum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta verður erfið ákvörðun fyrir mig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Amin er fæddur á Íslandi en faðir hans Almir, kom hingað til lands til að spila fótbolta fyrir rúmum tuttugu árum. Amin talar reiprennandi bosnísku og auðvitað íslensku. Fjölskyldan heldur þétt í ræturnar og fer til Bosníu á ári hverju.
Aðstoðarlandsliðsþjálfarinn og starfsmaður sambandsins hittu Amin og tjáðu honum að þeir væru búnir að fylgjast náið með honum og ætluðu sér að gera það áfram.
Amin er kantmaður, fæddur 2005, sem uppalinn er hjá HK en stimplaði sig vel inn hjá Njarðvík áður en KR keypti hann fyrir rúmu ári síðan. Hann spilaði frábærlega fyrri hluta árs með KR, vakti athygli erlendra félaga og fór svo að norsku meistararnir keyptu hann. Hann hefur nú byrjað síðustu tvo leiki hjá Viking og virðist vera kominn í nokkuð stórt hlutverk hjá liðinu sem er í 2. sæti í norsku úrvalsdeildinni og á leið í Meistaradeildina.
Amin var haustið 2019 valinn á úrtaksæfingar hjá KSÍ en spilaði ekki sinn fyrsta leik fyrir yngri landsliðin fyrr en á þessu ári. Þá kom hann inn á gegn Frakklandi í undankeppni EM U21 landsliða.
Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Amins, segir að KSÍ sé meðvitað um þá stöðu að Amin sé gjaldgengur í landslið tveggja landa.
Mjög erfið ákvörðun framundan
Fótbolti.net ræddi við Amin í dag og hann heldur möguleikunum opnum.
„Ég er ekki búinn að taka ákvörðun, veit ekki hvað ég myndi vilja. Ég var síðast í U21 hópnum hjá Íslandi og vonandi fæ ég stærra hlutverk þar en í síðasta verkefni. Ég er mjög þakklátur, fékk 20 mínútur á móti Frakklandi sem var draumur, en núna vona ég að ég sé kominn í stærra hlutverk og fæ að spila meira. Við eigum tvo toppleiki framundan; á móti Sviss og Frakklandi. Þetta verður erfið ákvörðun fyrir mig."
„Bæði sambönd hafa sett sig í sambönd, ég hef talað við Arnar Gunnlaugsson og menn hjá bosníska sambandinu."
„Það kom mér þannig séð ekki á óvart að Bosníumennirnir höfðu samband, það kom frekar á óvart tímasetningin því á þeim tíma var ég ekki búinn að spila neitt með Viking, það var smá sjokk. Ég hitti aðstoðarlandsliðsþjálfarann og yfirnjósnarann hjá þeim í Zagreb. Við ræddum saman í klukkutíma, þeir sögðu mér sína skoðun."
„Ég er búinn að tala við Arnar sem er toppnáungi, hann er mjög jákvæður og hefur látið mig vita að ég megi heyri í honum ef það er eitthvað sem ég vil spyrja út í. Við erum í góðu sambandi, hann er með geggjað plan sem hann sagði mér frá."
„Núna er ég bara rólegur, líklega U21 framundan og vonandi fæ ég stórt hlutverk þar."
Væri til í að vera í U21 í næsta verkefni
Er alveg klárt að þú verðir í U21 landsliði Íslands í næsta glugga sama hvernig fer?
„Það er svo sem ekkert alveg klárt, það getur allt gerst með bæði landsliðin. En ég væri samt til í að vera í U21 núna með strákunum, við erum með geggjað lið, toppleikmenn og toppleikir framundan. Ég væri ánægður að vera þar í næsta landsliðsverkefni. Þetta er erfitt val og ég vil ekki velja eitthvað bara til þess að velja það og verð svo mögulega ósáttur við það einhvern tímann í framtíðinni."
Fifty fifty
Hvernig eru tilfinningarnar gagnvart Íslandi og Bosníu?
„Þetta er í alvörunni 'fifty-fifty'. Ef þú hefðir spurt mig fyrir kannski þremur mánuðum þá hefði ég líklega sagt Bosnía án þess að hika af því ég sakna Bosníu. Ég fór þangað síðast 2024 en þegar ég var yngri fór ég á hverju einasta ári í einn og hálfan mánuð til Bosníu og hitti ömmu og afa. Á Íslandi er ég með mömmu, pabba, systur og bróður en öll önnur fjölskylda er í Bosníu. Ég fæ ekki að sjá þau nema þegar ég fer út."
„Þegar ég var yngri var regla að heima átti ég að tala bosnísku en mátti ekki tala hana þegar ég var annars staðar. Þess vegna kann ég tungumálið mjög vel og talaði bosnísku við aðstoðarlandsliðsþjálfarann. Hann sagði við mig að ég talaði málið eins og ég væri fæddur þar og hefði búið allt mitt líf þar. Ég tengi mjög mikið við bæði lönd. Núna, eftir að hafa verið í tvo mánuði úti í Noregi þá er ég byrjaður að sakna Íslands, vinanna og veðursins - alveg sama hvort það sé gott eða slæmt. Ég tengi sterkt við Ísland, ég er fæddur þar, tengi við fólkið og hef lifað mínu lífi eins og Íslendingur. Ég tengi mjög mikið við báða kosti og þetta er 'fifty-fifty'. Þegar ég var yngri og hugsaði út í þennan möguleika þá hélt ég að valið yrðu mun einfaldara, hugsaði þá 100% Bosnía. Þetta er erfitt val."
Ekki eins og að velja félagslið
Hvort er þetta meira gaman eða stress að taka ákvörðun eins og þessa?
„Þetta er ekkert stressandi, en þegar þú ert búinn að velja þá ertu búinn að velja. Þetta er ekki eins og að velja félagslið. Þetta eru mjög spennandi tímar, það er stórt að vera í A-landsliði, í raun sama hvaða landslið það er. Það eru mjög spennandi tímar, ég er núna byrjaður að spila aðeins meira, fæ traustið frá þjálfurunum og áhorfendum sem eru ánægðir með mig. Það gefur mér mjög mikið sjálfstraust. Eins og ég hef sagt áður þá fannst mér ég vera bestur á Íslandi einn á móti einum og ég hef mikla trú á mér," segir Amin.
Það er óljóst hvað Amin mun gera ef hann þarf að velja á milli, en það er ljóst að leikmaður sem spilar reglulega með liði sem er í Meistaradeildinni gerir alltaf sterkt tilkall á sæti í bæði íslenska og bosníska landsliðinu.
Íslenska U21 landsliðið er í möguleika á því að komast á EM á næsta ári, íslenska A-landsliðið er á leið í C-deild Þjóðadeildarinnar og Bosnía/Hersegóvína er í B-deild Þjóðadeildarinnar.

Var keyptur til norsku meistaranna í sumar.

Mynd: Viking Stavanger

Ólafur Garðarsson og Kjartan Henry Finnbogason eru umboðsmenn Amins.

Mynd: Aðsend


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vakti mikla athygli í Njarðvík og var svo frábær hjá KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amin og Arnar hafa rætt saman.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Samdi við Viking til árið 2030. Hann er einn dýrasti leikmaður sem seldur hefur verið úr Bestu deildinni.

Mynd: Aðsend

Frábær í stöðunni einn á móti einum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
