Fotbolti.net
22.11.26 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Bruno stoltur af frammistöðunni en ósáttur með dóminn

Bruno stoltur af frammistöðunni en ósáttur með dóminn
Canon

Mynd: EPA

Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United var líkt og samherjar sínir og þjálfari ósáttur með stóra ákvörðun sem breytti gangi mála í stórsigri Liverpool gegn Man Utd í dag.
Pochettino: Isak hægði á sér til að fá snertingu
TENGT EFNI

Pochettino: Isak hægði á sér til að fá snertingu

Sam Barrott dómari dæmdi rautt spjald á Leny Yoro snemma leiks og eru United menn mjög ósáttir með dóminn.

„Þetta var mjög erfiður leikur, það er alltaf slæmt að tapa gegn erkifjendunum og sérstaklega með þessum hætti. Við lögðum mikið á okkur í þessum leik en úrslitin sína það ekki. Við sköpuðum góð færi þrátt fyrir að vera manni færri, allir í liðinu hlupu mikið en við gátum ekki komið í veg fyrir stórt tap. Núna þurfum við að einbeita okkur að næsta leik," sagði Fernandes.

„Við spiluðum af hugrekki og reyndum að skapa færi og ég er ánægður með það, við lokuðum okkur ekki bara í vörn af hræðslu. Við gátum ekki náð í úrslit en liðið sýndi mikinn persónuleika og ég er stoltur af frammistöðunni."

Fyrirliðinn var svo spurður nánar út í rauða spjaldið sem Yoro fékk.

„Þetta er atvik sem þarf að skoða gaumgæfilega út af því að það er ekki nóg samræmi í því sem dómararnir segja við okkur og í dómgæslunni. Þetta er aldrei rautt spjald í dag, leikmaðurinn hefur augljóslega ekki stjórn á boltanum. Isak missir boltann frá sér og er á leið í hendurnar á Senne (Lammens). Hann (Isak) leitaði að snertingu út af hann var búinn að missa vald á boltanum.

„Það er of mikið af dómurum á vellinum og myndavélum til að þetta geti verið rautt spjald. Þeir tóku sér góðan tíma í þetta en tóku samt ranga ákvörðun. Þetta breytti leiknum. Auðvitað er markið úr aukaspyrnunni ekki þeim að kenna, en rauða spjaldið gjörbreytir leiknum."


Man Utd er í næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar og segir Bruno að það sé sársaukafull staða til að vera í. Nú sé það undir leikmönnum komið að rífa liðið upp stöðutöfluna.
Bruno stoltur af frammistöðunni en ósáttur með dóminn
Canon

Mynd: EPA

Bruno stoltur af frammistöðunni en ósáttur með dóminn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.