Fotbolti.net
22.11.26 - 19:47
Ívan Guðjón Baldursson

Pochettino: Isak hægði á sér til að fá snertingu

Pochettino: Isak hægði á sér til að fá snertingu
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino er ekki ánægður með stóra ákvörðun Sam Barrott dómara í stórsigri Liverpool gegn Manchester United.
Var Isak með stjórn á boltanum?
TENGT EFNI

Var Isak með stjórn á boltanum?

Barrott gaf Leny Yoro beint rautt spjald fyrir brot sem aftasti varnarmaður en Pochettino segir að Alexander Isak hafi platað dómarann.

„Ég er mjög vonsvikinn með þessa sársaukafullu byrjun, mér datt ekki í hug að endurkoman í úrvalsdeildina gæti byrjað með þessum hætti. Vandamálið er að leikurinn gjörbreyttist með einni ákvörðun snemma leiks og sama hvað við segjum og gerum núna þá er skaðinn skeður," sagði Pochettino.

„Þetta er svo sársaukafullt. Ég sagði strákunum að halda haus út af því að þeir lentu í svo ósanngjarnri stöðu. Boltinn var á leiðinni til markmannsins og miðað við tæknina sem við höfum í dag þá finnst mér ákvörðunin röng.

„Það er augljóst að hann (Leny Yoro) var ekki að reyna að hlaupa á Isak. Sóknarmaðurinn tók eftir því að hann missti boltann of langt frá sér svo hann hægði á sér til að fá snertingu frá varnarmanninum og fiska hann út af.

„Ef þið spólið bara tvær mínútur til baka þá gerðist svipað atvik á hinum enda vallarins þegar (Jérémy) Jacquet og (Bryan) Mbeumo eru að kljást. Þetta eru mjög svipuð atvik, ekki satt? Áttum við þá að fá vítaspyrnu?

„Ef við fáum vítaspyrnu á sjöttu mínútu og skorum úr henni þá er þetta allt annar leikur. En svona getur fótboltinn verið. Það eina sem við getum gert er að taka ábyrgð á tapinu og bæta okkur fyrir næsta leik."


Man Utd er í næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar með 8 stig eftir 11 umferðir. Rauðu djöflarnir eiga næst útileik við Sporting CP í deildarkeppni Meistaradeildarinnar.

„Mér líður eins og hvaða manneskja sem hefur vit á fótbolta geti séð að þetta á ekki að vera rautt spjald. Við verðum samt líka að bæta okkar leik, við verðum að bæta einbeitinguna og ákvarðanatökuna á vellinum.

„Þetta rauða spjald breytti öllu leikskipulaginu og undirbúningnum okkar. Við verðum að nýta reiðina sem við finnum fyrir og breyta henni í orku fyrir næsta leik.

„Ég er ánægður með framlag leikmanna, þeir lögðu allt í sölurnar einum færri á mjög erfiðum útivelli."
Pochettino: Isak hægði á sér til að fá snertingu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.