22.11.26 - 20:03
Ívan Guðjón Baldursson
Iraola kátur: Áttum skilið að vinna stærra

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Andoni Iraola var kátur eftir þægilegan 4-0 sigur Liverpool á heimavelli gegn tíu leikmönnum Manchester United.

TENGT EFNI
England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd
Þetta var annar sigur liðsins í röð og situr Liverpool í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Arsenal.
„Við höfum ekki verið nægilega góðir á heimavelli á tímabilinu og þurftum að sigra stórleik hérna, því er ég mjög ánægður. Leikur gegn Manchester United er alltaf stórleikur. Það er rétt að leikurinn breyttist þegar þeir misstu mann af velli en ég er ánægður með mína menn, þeir sinntu starfinu sínu af fagmennsku og voru við stjórn allan tímann. Sigurinn var að lokum þægilegur," sagði Iraola, sem fannst ekkert athugavert við rauða spjaldið sem Leny Yoro fékk snemma leiks.
„Er hann ekki aftasti varnarmaður? Þetta er þá augljóst brot og rautt spjald, ekki satt?
„Við fengum urmul dauðafæra í þessum leik í dag, við klúðruðum þrisvar eða fjórum sinnum einir á móti markmanni og áttum skilið að skora meira en fjögur mörk. Stundum þurfum við að vera grimmari fyrir framan markið en það kom ekki í bakið á okkur í dag. Við vorum frábærir, við leyfðum okkur meira að segja að fagna smá þegar dómarinn flautaði til hálfleiks og nutum þess að spila fótbolta fyrir framan stuðningsmennina."
Iraola hrósaði Florian Wirtz og Rio Ngumoha fyrir sitt framlag í sigrinum og segir að það sé of snemmt til að tala um titilbaráttu.
„Við töpuðum stórum leikjum á heimavelli (gegn Arsenal og Man City) og það er munurinn á stöðutöflunni sem stendur. Tímabilið er bara nýbyrjað og það er mikið af erfiðum leikjum framundan, næst spilum við gegn Club Brugge og svo eigum við erfiðan nágrannaslag (við Everton)."

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 11 | +10 | 28 |
| 2 | Brighton | 11 | +17 | 22 |
| 3 | Man City | 11 | +8 | 22 |
| 4 | Liverpool | 11 | +7 | 21 |
| 5 | Bournemouth | 11 | +4 | 18 |
| 6 | Leeds | 11 | +5 | 17 |
| 7 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 8 | Chelsea | 11 | 0 | 16 |
| 9 | Tottenham | 11 | +1 | 15 |
| 10 | Brentford | 10 | +5 | 14 |
| 11 | Hull City | 11 | +2 | 14 |
| 12 | Aston Villa | 11 | -3 | 14 |
| 13 | Newcastle | 11 | -3 | 13 |
| 14 | Coventry | 11 | -8 | 12 |
| 15 | Fulham | 11 | -2 | 11 |
| 16 | Ipswich Town | 11 | -7 | 11 |
| 17 | Nott. Forest | 11 | -6 | 9 |
| 18 | Sunderland | 11 | -9 | 9 |
| 19 | Man Utd | 11 | -8 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 11 | -15 | 7 |