Fotbolti.net
22.11.26 - 17:22
Ívan Guðjón Baldursson

Hürzeler: Dómarinn ekki ástæðan fyrir þessu tapi

Hürzeler: Dómarinn ekki ástæðan fyrir þessu tapi
Canon

Mynd: EPA

Fabian Hürzeler stjóri Brighton var skiljanlega svekktur eftir tap gegn nýliðum Hull City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Tzolakis í essinu sínu í dramatískum sigri á Brighton
TENGT EFNI

England: Tzolakis í essinu sínu í dramatískum sigri á Brighton

Brighton var sterkara liðið stærsta hluta leiksins en tókst ekki að skora framhjá Konstantinos Tzolakis markverði Hull sem átti stórleik.

Staðan hélst því markalaus allt þar til í uppbótartíma, þegar Oli McBurnie tókst að skora tvö mörk fyrir heimamenn til að tryggja langþráðan sigur. Þetta var fyrsti sigur Hull síðan í ágúst og á sama tíma mikill skellur fyrir Brighton sem situr í öðru sæti deildarinnar og hefði getað minnkað bilið á milli sín og toppliðs Arsenal niður í þrjú stig með sigri.

Brighton kláraði leikinn einum leikmanni færri eftir að Costinha fékk tvö gul spjöld í síðari hálfleiknum.

„Svona getur fótboltinn verið, úrvalsdeildin sýnir enga vægð. Hull voru heppnir að skora í uppbótartíma en við verðum að taka þessu og gera betur næst. Við vorum ekki upp á okkar besta á lokakaflanum eftir að hafa verið talsvert sterkara liðið fyrstu 65 mínúturnar. Það er auðvelt að missa haus þegar maður klúðrar svona mörgum færum," sagði Hurzeler eftir lokaflautið.

„Markvörðurinn þeirra átti stórleik og á hrós skilið fyrir sína frammistöðu. Hann var frábær."

Pascal Gross vildi fá dæmda vítaspyrnu í leiknum en Hürzeler segist ekki hafa séð atvikið.

„Ég hef ekki séð endursýninguna en dómarinn er ekki ástæðan fyrir því að við töpuðum í dag.

„Við verðum að greina hvað fór úrskeiðis en í grunninn þá verðum við að leggja meiri vinnu á okkur. Við verðum að leggja meiri vinnu á okkur heldur en andstæðingurinn, annars er erfitt að vinna leiki í þessari deild. Öll liðin eru svo gæðamikil."
Hürzeler: Dómarinn ekki ástæðan fyrir þessu tapi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.