22.11.26 - 17:50
Ívan Guðjón Baldursson
England: Stórveldin hikstandi

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Það er margt áhugavert að gerast í ofurdeild kvenna á Englandi þar sem ríkjandi Englandsmeistarar Manchester City voru að tapa sínum öðrum leik í röð.
Man City tapaði óvænt á heimavelli gegn Tottenham eftir tap í risaslagnum gegn Chelsea í síðustu umferð. City mistókst þannig að endurheimta toppsæti deildarinnar og situr í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Chelsea.
Arsenal gerði þá jafntefli við West Ham og er stórveldið aðeins með 15 stig eftir 11 umferðir.
Í gær missteig topplið Chelsea sig með að gera jafntefli við Liverpool, en London City Lionesses og Manchester United unnu sína leiki.
London City skoraði sex mörk gegn Crystal Palace og situr liðið í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir toppliði Chelsea og tveimur stigum fyrir ofan Man Utd eftir nauman sigur Rauðu djöflanna á útivelli gegn Birmingham.
Man City 1 - 3 Tottenham
Arsenal 0 - 0 West Ham
Liverpool 0 - 0 Chelsea
London City 6 - 2 Crystal Palace
Birmingham 1 - 2 Man Utd
Everton 0 - 1 Brighton
Charlton 1 - 1 Aston Villa

England - konur
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Chelsea W | 11 | +24 | 27 |
| 2 | Manchester City W | 11 | +14 | 25 |
| 3 | London City Lionesses W | 11 | +17 | 23 |
| 4 | Man Utd W | 11 | +2 | 21 |
| 5 | Tottenham W | 11 | +9 | 20 |
| 6 | Arsenal W | 11 | 0 | 15 |
| 7 | Brighton W | 11 | +1 | 14 |
| 8 | Aston Villa W | 11 | -5 | 14 |
| 9 | West Ham W | 11 | -8 | 13 |
| 10 | Liverpool W | 11 | +1 | 12 |
| 11 | Everton W | 11 | -3 | 12 |
| 12 | Crystal Palace W | 11 | -15 | 9 |
| 13 | Birmingham W | 11 | -12 | 6 |
| 14 | Charlton Athletic W | 11 | -25 | 1 |