22.11.26 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Má fara frá Val en gæti tekið slaginn áfram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Stefán Þór Ágústsson er leikmaður Vals en hann hefur verið orðaður við önnur félög í haust. Þar á meðal eru Þróttur og uppeldisfélagið Selfoss.
Stefán kom í Val frá Selfossi fyrir tímabilið 2024 og hefur á þremur tímabilum spilað fimmtán deildarleiki, komið við sögu í einum Evrópuleik og varið mark Vals í einum bikarleik.
Á liðnu tímabili var hann varamarkvörður fyrir Frederik Schram en varði mark Valsara í tveimur leikjum í deildinni.

TENGT EFNI
Selfoss og Þróttur hafa áhuga á Stefáni Þór
Hann endursamdi við Val fyrir um ári síðan og skrifaði þá undir samning við félagið út tímabilið 2028.
Fótbolti.net heyrði í Stefáni og kannaði hver hans staða væri.
„Ég átti gott samtal við Val um mína stöðu eftir að félagið framlengdi samninginn við Fredda," segir Stefán en Valur framlengdi við Frederik Schram fyrr í haust.
„Þar kom fram að ég mætti skoða aðra möguleika og að Valur myndi ekki standa í vegi fyrir mér ef eitthvað áhugavert kæmi upp."
„Mér fannst það vel gert hjá Val að ræða þetta við mig og bjóða mér þann möguleika, enda var þetta ekki alveg það sem við höfðum lagt upp með þegar ég framlengdi samninginn minn í fyrra."
„En það þýðir ekkert að ég sé á förum. Markmiðið mitt hefur alltaf verið að verða aðalmarkvörður Vals og ég átti mjög gott spjall við Halla Björns markmannsþjálfara um daginn."
„Auðvitað er maður samt í fótbolta til að spila leiki og það er það sem ég vil gera. Ég er því opinn fyrir því að skoða aðra möguleika en alveg eins tilbúinn að vera áfram hjá Val og berjast fyrir mínu sæti," segir Stefán sem er 25 ára. Hann hafði verið aðalmarkvörður Selfoss í fimm tímabil áður en hann hélt á Hlíðarenda.