Fotbolti.net
22.11.26 - 16:49
Ívan Guðjón Baldursson

Tveimur undir og manni færri í fyrsta leik Pochettino

Tveimur undir og manni færri í fyrsta leik Pochettino
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino er að stýra Manchester United í fyrsta sinn og eru lærlingar hans strax lentir undir á erfiðum leikvangi Liverpool.
Byrjunarlið Liverpool og Man Utd: Svona stillir Pochettino upp í sínum fyrsta leik
TENGT EFNI

Byrjunarlið Liverpool og Man Utd: Svona stillir Pochettino upp í sínum fyrsta leik

Leny Yoro braut af sér sem aftasti varnarmaður eftir slæm mistök Matthijs de Ligt og fékk að líta rauða spjaldið. De Ligt var að spila sinn annan byrjunarliðsleik eftir árs fjarveru vegna slæmra bakmeiðsla.

Yoro braut af sér rétt utan vítateigs og skoraði Dominik Szoboszlai beint úr aukaspyrnunni til að taka forystuna.

Nokkrum mínútum síðar tvöfölduðu heimamenn forystuna með frábæru marki. Florian Wirtz kláraði meistaralega eftir flottan undirbúning frá táningnum Rio Ngumoha.

Staðan er því orðin 2-0 fyrir Liverpool og gæti þetta einvígi endað afar illa fyrir tíu leikmenn Man Utd.

Pochettino svaraði seinna markinu með að skipta Harry Maguire inn fyrir Bryan Mbeumo.
Tveimur undir og manni færri í fyrsta leik Pochettino
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.