22.11.26 - 10:43
Brynjar Ingi Erluson
Fernandes: Gæti farið eitthvert annað og fengið miklu betur borgað en hjá Man Utd

Bruno Fernandes er ekki í viðræðum við Man Utd

Mynd: EPA

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hefur vísað á bug fréttum um að hann sé í viðræðum við félagið um nýjan samning.
Á dögunum var greint frá því að Fernandes hefði hafnað öðru samningstilboði United á þessu ári, en að viðræður væru engu að síður að þokast í rétta átt.
Omar Berrada, framkvæmdastjóri United, sagði einnig að félagið hefði átt jákvæð samtöl við Fernandes um nýjan samning. Leikmaðurinn segir hins vegar í viðtali við Sky Sports að engar viðræður séu í gangi eins og staðan er núna.
„Man Utd bauð mér nýjan samning og það sýnir að félagið vill halda mér, en það eru engar viðræður í gangi,“ sagði Fernandes.
Fernandes átti samtöl við United í sumar en að nú sé öll einbeiting á að koma liðinu aftur á sigurbraut.
Fernandes ræddi einnig orðróminn um að hann hefði farið fram á hærri laun og lengri samning, en sagði að ef hann væri á höttunum eftir meiri peningum væri hann líklega einhvers staðar þar sem væri hlýrra en í Manchester.
Hann hefur reglulega verið orðaður við félög í Sádi-Arabíu og reyndi Al Hilal meðal annars að fá hann til sín á síðasta ári, en ekkert varð úr þeim félagaskiptum.
„Við ræddum um nýjan samning í lok síðasta tímabils og tókum málið aftur upp í byrjun þessa tímabils. Þá ræddum við bæði samninginn og stöðuna hjá liðinu og félaginu. Ég ákvað hins vegar að setja þetta á ís því þetta er ekki rétti tíminn, hvorki fyrir mig né félagið, til að ræða nýjan samning. Það mikilvægasta núna er að liðið fari að vinna leiki.“
„Það eru engar viðræður í gangi, en ég hef séð fólk halda því fram að ég hafi farið fram á hærri laun og lengri samning. Ef ég væri á höttunum eftir meiri peningum væri ég ekki hér. Ég gæti farið eitthvert annað og fengið miklu betur borgað en hjá Man Utd.“
„Ég gæti meira að segja verið einhvers staðar þar sem er miklu hlýrra en í Manchester!“ sagði Fernandes í lokin.