Fotbolti.net
22.11.26 - 12:52
Brynjar Ingi Erluson

Andri Lucas óstöðvandi - „Þetta er fyrir þig Tony!“

Andri Lucas fagnaði markinu með að senda stuðning á Tony Mowbray

Andri Lucas fagnaði markinu með að senda stuðning á Tony Mowbray

Canon

Mynd: Af netinu

Andri Lucas Guðjohnsen heldur áfram þar sem frá var horfið með Blackburn Rovers og hefur nú skorað gegn Burnley í ensku B-deildinni í dag. Þetta var ellefta deildarmark hans á tímabilinu.
Andri Lucas hefur verið gjörsamlega óstöðvandi með Blackburn á tímabilinu og verið ótrúlega skilvirkur en tölfræðin hans fyrir framan markið skákar jafnvel sumum af bestu framherjum heims.

Andri er í byrjunarliði Blackburn gegn Burnley, sem komst yfir með marki frá Largie Ramazani, en íslenski framherjinn var ekki lengi að svara fyrir sig.

Langur bolti kom fram völlinn og Kyle Walker spilaði Andra réttstæðan. Hann hafði betur í baráttunni við miðvörð Burnley, notaði líkamann skynsamlega og lét boltann detta fyrir sig áður en hann þrumaði honum með glæsilegu ristarskoti í fjærhornið.

Afgreiðsla í hæsta gæðaflokki og staðan orðin jöfn.

Andri hljóp að hornfánanum til að fagna og sýndi þar bol með stuðningskveðju til Tony Mowbray, sem steig til hliðar sem stjóri Blackburn á dögunum af heilsufarsástæðum.

Í kjölfarið sneri Andri sér að myndavélinni og kallaði: „Þetta er fyrir þig, Tony!“

Andri blómstraði undir stjórn Mowbray og á honum mikið að þakka. Hann hefur nú skorað tæplega helming marka Blackburn á tímabilinu og miðað við formið sem hann er í virðist spurningin frekar vera hvenær en hvort hann taki skrefið upp í úrvalsdeildina.

Frammistaða Andra hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum X, þar sem stuðningsmenn fjölmargra félaga keppast við að óska eftir því að fá hann til sín í janúarglugganum.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af þeim færslum sem hafa vakið athygli.





























Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.