Fotbolti.net
22.11.26 - 20:49
Ívan Guðjón Baldursson

Rúnar Alex fékk fimm mörk á sig - Kristall funheitur

Rúnar Alex fékk fimm mörk á sig - Kristall funheitur
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Síðustu Íslendingaleikjum dagsins er lokið víða um Evrópu og er helst að frétta að Rúnar Alex Rúnarsson fékk sjaldgæft tækifæri á milli stanga FC Kaupmannahafnar eftir meiðsli Diant Ramaj á útivelli gegn Nordsjælland.
Rúnari var skipt inn á 18. mínútu þegar staðan var markalaus og endaði á að fá fimm mörk á sig í stóru tapi.

Staðan var 1-0 fyrir Nordsjælland þegar Akos Markgraf fékk beint rautt spjald í liði FCK og réðu tíu liðsfélagar Rúnars engan veginn við fullskipað lið andstæðinganna, sem enduðu á að sigra 5-0.

Viktor Bjarki Daðason fékk að spila síðustu 20 mínúturnar og er FCK áfram á toppi deildarinnar með 32 stig eftir 15 umferðir, en getur misst toppsætið til Midtjylland sem á leik til góða.

Kristall Máni Ingason hefur þá verið í miklu stuði með Brann í norska boltanum og skoraði hann í fjörugum sjö marka leik, þar sem Brann stóð uppi sem sigurvegari.

Kristall Máni er kominn með fjögur mörk og tvær stoðsendingar í síðustu sex leikjum með Brann í öllum keppnum. Liðið siglir lygnan sjó í efri hluta norsku deildarinnar og er að gera flotta hluti í Sambandsdeildinni - með sjö stig eftir þrjár umferðir.

Júlíus Mar Júlíusson fékk að spila uppbótartíma í jafntefli Kristiansund gegn Sandefjord og var Ólafur Guðmundsson ónotaður varamaður í jafntefli Álasunds gegn Frey Alexanderssyni og lærlingum hans í liði Rosenborg.

Íslendingaliðin eru í harðri fallbaráttu eftir jafntefli dagsins, þegar þrjár umferðir eru eftir af deildartímabilinu. Rosenborg er hins vegar í góðri stöðu í baráttunni um sæti í Sambandsdeildinni á næstu leiktíð.

Í C-deildinni á Ítalíu var Kristófer Jónsson á sínum stað í byrjunarliði Reggiana og gaf stoðsendingu í jafnteflisleik. Reggiana er í baráttu um umspilssæti, með 22 stig eftir 15 umferðir.

Í C-deildinni á Spáni fékk Sigurður Bjartur Hallsson að spila síðasta hálftímann í jafntefli hjá Mérida sem er í umspilsbaráttu með 20 stig eftir 13 umferðir.

Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson byrjuðu báðir í tapi Go Ahead Eagles í efstu deild í Hollandi og er liðið um miðja deild með 17 stig eftir 13 umferðir, á meðan Atli Barkarson, Brynjar Ingi Bjarnason, Patrik Sigurður Gunnarsson og Hildur Antonsdóttir voru ónotaðir varamenn hjá sínum liðum.

Nordsjælland 5 - 0 FCK

KFUM Oslo 3 - 4 Brann

Kristiansund 2 - 2 Sandefjord

Aalesund 2 - 2 Rosenborg

Forli 1 - 1 Reggiana

Merida 1 - 1 Real Union

G.A. Eagles 0 - 1 Fortuna Sittard

Sonderjyske 1 - 2 OB

Kortrijk 0 - 1 Royale Union Saint-Gilloise

Newcastle 0 - 2 Nottingham Forest
kvenna
Rúnar Alex fékk fimm mörk á sig - Kristall funheitur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Rúnar Alex fékk fimm mörk á sig - Kristall funheitur
Canon

Mynd: Reggiana

Rúnar Alex fékk fimm mörk á sig - Kristall funheitur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.