Fotbolti.net
22.11.26 - 17:42
Ívan Guðjón Baldursson

McBurnie með happakanínu: Kötturinn var stórkostlegur

McBurnie með happakanínu: Kötturinn var stórkostlegur
Canon

Mynd: EPA

Oli McBurnie skoraði bæði mörkin í uppbótartíma er Hull City vann óvænt 2-0 gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Tzolakis í essinu sínu í dramatískum sigri á Brighton
TENGT EFNI

England: Tzolakis í essinu sínu í dramatískum sigri á Brighton

Sigurinn er afar dýrmætur eftir að liðið fór í gegnum síðustu þrjá mánuði án þess að sigra einn einasta leik. Hull er núna með 14 stig eftir 11 umferðir.

McBurnie hrósaði markverðinum Konstantinos Tzolakis í hástert að leikslokum og ræddi um happakanínuna sem hann fékk frá dóttur sinni.

„Þetta er starfið hans. Kötturinn var stórkostlegur í dag og við erum heppnir að hafa hann. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann bjargar okkur á tímabilinu," sagði McBurnie.

„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur gegn andstæðingum í hæsta gæðaflokki. Við vissum að við þyrftum að spila upp á okkar besta og treysta á heppni til að ná í jákvæð úrslit. Heppnin var með okkur og kötturinn bjargaði okkur með ótrúlegri frammistöðu. Við náðum að halda okkur í leiknum allt þar til í lokin þegar við nýttum færin okkar til að sigra.

„Þetta er kærkominn sigur fyrir okkur og við erum fullir sjálfstrausts. Ég var sem betur fer með happakanínu frá dóttur minni meðferðis og ég er viss um að hún verður ánægð með sig. Hún gefur mér alltaf eitthvað happa á hverjum degi áður en ég fer í vinnuna."


Tzolakis tjáði sig einnig eftir sigurinn frækna.

„Ég átti margar markvörslur en við þurftum líka mörkin frá Oli til þess að vinna. Þetta var liðsframtak, við hjálpuðumst að og skópum þennan sigur sem liðsheild. Við spilum fyrir hvorn annan og áttum skilið að vinna eftir frammistöðuna okkar í dag. Við þurftum að kveljast í fyrri hálfleiknum og nýttum færin okkar í seinni hálfleik til að sigra."
McBurnie með happakanínu: Kötturinn var stórkostlegur
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Bournemouth11+418
5Liverpool10+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.