Fotbolti.net
23.11.26 - 23:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Andrews: Fólk mun líklega horfa framhjá þessari frammistöðu

Andrews: Fólk mun líklega horfa framhjá þessari frammistöðu
Canon

Mynd: EPA

Brentford vann sannfærandi 4-0 sigur á Everton í kvöld. Keane Lewis-Potter lagði grunninn með tveimur mörkum í fyrri hálfleik.

Keith Andrews var himinnlifandi með frammistöðuna en er hræddur um að fólk muni ekki bera jafn mikla virðingu fyrir leiknum þar sem James Tarkowski var rekinn af velli undir lok fyrri hálfleiks.
„Fólk mun líklega líta framhjá þessu út af rauða spjaldinu en mér fannst við frábærir ellefu á móti ellefu. Við spiluðum af hugrekki, hraða, orku og vilja," sagði Andrews.

Brentford hafnaði í 9. sæti á síðustu leiktíð og 10. sæti tímabilið 2024/25. Liðið er í 6. sæti eftir sigurinn í kvöld.

„Væntingarnar hjá þessu félagi, og mögulega utan frá, hafa breyst. Staðan er sú að óháð frammistöðu eða úrslitum, þá vinnum við leik og komumst í sjötta sæti deildarinnar. En samt er eins og eitthvað hangi í loftinu: ‚við erum ekki alveg sáttir‘ eða ‚ættu þeir ekki að standa sig aðeins betur?‘

„Kannski þarf fólk að horfast aðeins meira í augu við raunveruleikann. Ég er virkilega ánægður með hópinn og félagið okkar.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.