Fotbolti.net
23.11.26 - 17:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tveir ekki áfram hjá Víkingi - „Lýsti upp deildina með sínum leikstíl"

Óskar lék frábærlega fram að meiðslum og sneri svo aftur til baka í lokaumferðinni.

Óskar lék frábærlega fram að meiðslum og sneri svo aftur til baka í lokaumferðinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þeir Ögmundur Kristinsson og Sveinn Aron Guðjohnsen verða ekki áfram hjá Víkingi á næsta tímabili. Þetta segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Markvörðurinn Ögmundur spilaði fimm leiki fyrir Víking og framherjinn Sveinn Aron kom við sögu í þremur. Þeir eru báðir með lausa samninga.

Kári var spurður hvort Víkingar væru að líta í kringum sig á markaðnum.
Kári Árna: Er á þannig aldri að hann þarf að spila
TENGT EFNI

Kári Árna: Er á þannig aldri að hann þarf að spila

Frekar að horfa í að losa menn
„Eftir öll þessi meiðsli og brjálæði sem við lentum í erum við frekar of margir heldur en of fáir. Við erum ekki að skoða mikið að fá menn inn, frekar í hina áttina í sannleika sagt," segir Kári.

Breiðablik gerði vel í að fá hann
Þið voruð aðeins orðaðir við Stefan Alexander Ljubicic, töluðuð þið eitthvað við hann?

„Við töluðum við umboðsmanninn hans og hann sjálfan. Hann er frábær leikmaður, það er ekki spurning, og Breiðablik gerði vel í að fá hann. En við erum meira að horfa í að losa einhverja."

Óskar óheppinn
Eruð þið að fá tilboð í leikmenn?

„Það er alltaf einhver áhugi hingað og þangað, þannig það gerist eitthvað í því. Þetta er bara þolinmæðisvinna."

Er möguleiki á að einhver fari erlendis?

„Já, við erum með gríðarlega efnilega leikmenn og strákar eins og Óskar Borgþórsson og Stígur Diljan Þórðarson eru á radar út um allt. Ég reikna frekar með því, frekar en ekki, að einhver fari erlendis."

„Meiðslin hans Óskars komu ekki á æðislegum tíma, hann var óheppinn. Hann hefði farið út eftir tímabilið ef hann hefði klárað það á því skriði sem hann var á. Hann var yfirburðamaður í deildinni, held að flestir séu sammála um það, það hefur sjaldan verið svona spennandi leikmaður í deildinni. Hann lýsti hann upp deildina með leikstíl og skemmtanagildi, bæði skorandi og leggjandi upp mörk. Ég reikna með því að hann fari út fyrr en seinna."


Óskar hefur m.a. orðað við Luton.

Tarik snúi aftur á völlinn í febrúar
Það var gefið út að Tarik Ibrahimagic yrði klár fyrir næsta tímabil þegar hann framlengdi við félagið í haust. Hvernig eru horfurnar með Elías Má Ómarsson?

„Meiðsli Elíasar eru þekktari en meiðsli Tariks voru, krossbandsslit hjá Elíasi. Við reiknum ekkert endilega með honum fyrr en ári eftir að hann sleit."

„Tarik lítur mjög vel út og verður held ég kominn inn á völl í febrúar. Ég reikna með því að hann verði klár í fyrsta leik í móti,"
segir Kári.

Komnir
Eiður Orri Ragnarsson frá Keflavík
Ólafur Örn Ásgeirsson keyptur frá HK - lánaður til baka
Atli Þór Jónasson frá Fram (var á láni)
Jóhannes Kristinn Bjarnason frá FH (var á láni)
Erlingur Agnarsson frá FH (var á láni)
Þorri Ingólfsson frá Þór (var á láni)
Björgvin Brimi Andrésson frá Gróttu (var á láni)

Farnir
Gunnar Vatnhamar til Vejle
Nikolaj Hansen til KA
Ögmundur Kristinsson
Sveinn Aron Guðjohnsen
Stígur Diljan lék vel á kantinum hjá Víkingi.

Stígur Diljan lék vel á kantinum hjá Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Aron kom til Víkings í sumar.

Sveinn Aron kom til Víkings í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ögmundur var fenginn til Víkings snemma sumars.

Ögmundur var fenginn til Víkings snemma sumars.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tarik snýr aftur á völlinn í febrúar.

Tarik snýr aftur á völlinn í febrúar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.