24.11.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Herða gæsluna á stórleik helgarinnar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lögreglan í Lundúnum (Metropolitan Police) hyggst tvöfalda fjölda lögreglumanna sem verða á vettvangi í heimaleik Arsenal gegn Manchester City á sunnudag.
Búist er við að 150 lögreglumenn verði á staðnum þegar liðin mætast í fyrsta sinn eftir að City var fundið sekt um brot á reglum ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta herma heimildarmenn The Athletic sem þekkja til starfsemi lögreglunnar. Þeir kjósa að koma fram undir nafnleynd þar sem þeir hafa ekki heimild til að tjá sig opinberlega um málið.
Sögulega séð hefur þessi viðureign ekki valdið lögreglunni teljandi vandræðum en nú er hún talin „mjög áhættusöm."
Síðan City var fundið sekt hafa stuðningsmenn andstæðinga liðsins verið duglegir að syngja ljóta söngva um félagið.
Arsenal mistókst að vinna City í þrígang á síðasta tímabili. City vann Arsenal í úrslitum deildabikarsins og þá gerðu liðin jafntefli í fyrri deildarviðureigninni og City vann þá seinni 2-1. Arsenal stóð hins vegar uppi sem sigurvegari í deildinni.
Arsenal er á toppi deildarinnar í dag, sex stigum á undan Man City sem er í 3. sæti.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 11 | +10 | 28 |
| 2 | Brighton | 11 | +17 | 22 |
| 3 | Man City | 11 | +8 | 22 |
| 4 | Liverpool | 11 | +8 | 21 |
| 5 | Bournemouth | 11 | +4 | 18 |
| 6 | Brentford | 11 | +9 | 17 |
| 7 | Leeds | 11 | +5 | 17 |
| 8 | Chelsea | 11 | 0 | 16 |
| 9 | Everton | 11 | -2 | 16 |
| 10 | Tottenham | 11 | +1 | 15 |
| 11 | Hull City | 11 | +2 | 14 |
| 12 | Aston Villa | 11 | -3 | 14 |
| 13 | Newcastle | 11 | -3 | 13 |
| 14 | Coventry | 11 | -8 | 12 |
| 15 | Fulham | 11 | -2 | 11 |
| 16 | Ipswich Town | 11 | -7 | 11 |
| 17 | Nott. Forest | 11 | -6 | 9 |
| 18 | Sunderland | 11 | -9 | 9 |
| 19 | Man Utd | 11 | -9 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 11 | -15 | 7 |