Fotbolti.net
23.11.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gagnrýnir liðsval Pochettino - „Vanvirðing"

Gagnrýnir liðsval Pochettino - „Vanvirðing"
Canon

Mynd: EPA

Liverpool goðsögnin Steven Gerrard segir að Mauricio Pochettino hafi tekið ranga ákvörðun að setja Matthijs de Ligt í byrjunarlið Man Utd í 4-0 tapinu gegn Liverpool um helgina.

De Ligt átti erfitt uppdráttar en þetta var fyrsti leikurinn hans í deildinni eftir langvarandi meiðsli. Gerrard var hugsi yfir því að Harry Maguire hafi verið skilinn eftir á bekknum.
„Gleymdu ungu leikmönnunum sem eru kannski ekki klárir í þennan leik. Matthijs de Ligt hefur verið frá í ár. Harry Maguire er þeirra besti varnarmaður í augnablikinu. Hann hefði átt að byrja," sagði Gerrard.

„Hann brettir upp ermar og fer af öllu afli í þetta. Hann hefur ekki verið fullkominn en að spila honum ekki og setja De Ligt inn fyrir hann, mér fannst það vera vanvirðing."

Maguire kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik eftir að Leny Yoro var rekinn af velli fyrir brot á Alexander Isak en Isak komst auðveldlega framhjá De Ligt áður en Yoro tók hann niður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.