Fotbolti.net
23.11.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vill að Calvert-Lewin taki við af Gyökeres

Vill að Calvert-Lewin taki við af Gyökeres
Canon

Mynd: EPA

Viktor Gyökeres hefur ekki staðið undir væntingum hjá Arsenal en hann hefur aðeins skorað tvö mörk í 15 leikjum á tímabilinu. Mikel Arteta hefur kosið að nota Kai Havertz í stað sænska framherjans.

Theo Walcott, fyrrum leikmaður Arsenal, vill að félagið fá Dominic Calvert-Lewin, framherja Leeds, til að taka við af Gyökeres. Calvert-Lewin er 29 ára en hann hefur skorað fimm mörk í 11 leikjum í úrvalsdeildinni á tímabilinu.
„Ég horfi til leikmanns eins og Dominic Calvert-Lewin. Hann hefur átt framúrskarandi ár. Hann er 'nía' sem gæti nýst Arsenal í augnablikinu," sagði Walcott.

„Gyökeres hentar fyrir gamaldags vængmann, ekki þeirra sem leita inná við. Hann vill vera í því svæði, hann vill vera sá leikmaður sem bindur endahnútinn. Hann tímasetur hlaupin ekki vel því hann er ekki viss hvenær boltinn kemur ef hann kemur."

„Þar að auki hefur leikstíll hans áhrif á alla. Arsenal er vant því að spila með falska níu, sem leiðir til þess að allir þurfa að breyta leiknum sínum. Ég tel að þetta hamli leik Arsenal verulega."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.