24.11.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Evanilson tekur undir með Rayan - Draumur að skora á Old Trafford

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Evanilson, framherji Bournemouth, segir að það sé algjör draumur að spila og skora á móti Man Utd.
Bournemouth vann Man Utd 3-0 á Old Trafford í síðasta mánuði. Evanilson skoraði eitt af mörkum Bournemouth en hann hefur skorað í fjórum leikjum í röð eftir það.

TENGT EFNI
Rayan alltaf verið stuðningsmaður Man Utd
Rayan, liðsfélagi hans hjá Bournemouth, skoraði einnig í leiknum og hann hefur einnig tjáð sig um að það hafi verið draumur að skora á Old Trafford.
„Af stórliðunum á Englandi þá er Man Utd liðið sem ég er hrifnastur af. Rayan sagði það sama. Þegar ég var krakki horfði ég alltaf á United," sagði Evanilson.
„Ég horfði mikið á Cristiano Ronaldo þegar hann spilaði fyrir United. Og að vita að ég sé að spila á móti þeim núna... Þetta er þriðja tímabilið mitt og ég skoraði á móti þeim á síðasta tímabili og á þessu á Old Trafford."
„Það er draumur að spila á þeim velli og skora mörk er enn mikilvægara. Það er draumur sem ég hef uppfyllt, að skora gegn United vegna þess hve stórt félagið er," sagði Evanilson að lokum.