23.11.26 - 22:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Brentford með sannfærandi sigur á tíu leikmönnum Everton

Keane Lewis-Potter

Mynd: EPA

James Tarkowski

Mynd: EPA

Keane Lewis-Potter

Mynd: EPA
Brentford 4 - 0 Everton
1-0 Keane Lewis-Potter ('23 )
2-0 Keane Lewis-Potter ('25 )
3-0 Vitaly Janelt ('67 )
4-0 Fabio Carvalho ('90 )
Rautt spjald: James Tarkowski, Everton ('40)
1-0 Keane Lewis-Potter ('23 )
2-0 Keane Lewis-Potter ('25 )
3-0 Vitaly Janelt ('67 )
4-0 Fabio Carvalho ('90 )
Rautt spjald: James Tarkowski, Everton ('40)
Brentford vann sannfærandi sigur á Everton í úrvalsdeildinni í kvöld. Michael Kayode fékk fyrsta færi leiksins en skaut framhjá úr teignum.
Stuttu síðar náði Brentford forystunni. Jaidon Anthony fann Keane Lewis-Potter inn á teignum og skot hans fór af varnarmanni og í netið.
Lewis-Potter bætti öðru marki sínu og öðru marki Brentford við stuttu síðar. Hann fékk boltann eftir aukaspyrnu og skoraði með skoti úr teignum í annarri tilraun.
James Tarkowski fékk gult spjald undir lok fyrri hálfleiks fyrir að fara með takkana í sköflunginn á Yehor Yarmolyuk. Craig Pawson dómari fór í skjáinn og niðurstaðan var rautt spjald.
Tarkowski strunsaði af velli áður en Pawson tilkynnti í hátalarakerfið um niðurstöðuna. Þetta var fyrsta rauða spjald Tarkowski í úrvalsdeildinni.
Vitaly Janelt bætti þriðja marki Brentford við með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn og Fabio Carvalho innsiglaði sigurinn í blálokin þegar hann skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu.
Brentford er í 6. sæti með 17 stig eftir ellefu umferðir en Everton er í 9. sæti með 16 stig.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 11 | +10 | 28 |
| 2 | Brighton | 11 | +17 | 22 |
| 3 | Man City | 11 | +8 | 22 |
| 4 | Liverpool | 11 | +8 | 21 |
| 5 | Bournemouth | 11 | +4 | 18 |
| 6 | Leeds | 11 | +5 | 17 |
| 7 | Everton | 11 | +2 | 17 |
| 8 | Chelsea | 11 | 0 | 16 |
| 9 | Brentford | 11 | +5 | 15 |
| 10 | Tottenham | 11 | +1 | 15 |
| 11 | Hull City | 11 | +2 | 14 |
| 12 | Aston Villa | 11 | -3 | 14 |
| 13 | Newcastle | 11 | -3 | 13 |
| 14 | Coventry | 11 | -8 | 12 |
| 15 | Fulham | 11 | -2 | 11 |
| 16 | Ipswich Town | 11 | -7 | 11 |
| 17 | Nott. Forest | 11 | -6 | 9 |
| 18 | Sunderland | 11 | -9 | 9 |
| 19 | Man Utd | 11 | -9 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 11 | -15 | 7 |