Fotbolti.net
23.11.26 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Benedikt sagður ósáttur og með 20 milljóna verðmiða

Ekki komið upp neitt ósætti varðandi æfingatímann

Benedikt Warén lék vel á tímabilinu.

Benedikt Warén lék vel á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benedikt Warén, leikmaður Stjörnunnar, er í hlaðvarpsþættinum Dr. Football orðaður við endurkomu í Breiðablik.

Benedikt þekkir vel til hjá Breiðabliki, var hjá félaginu í yngri flokkum og hóf meistaraflokksferilinn í Kópavogi. Hann var síðast hjá Blikum árið 2022 en hélt í kjölfarið vestur í Vestra. Stjarnan keypti svo Benedikt eftir tímabilið 2024. Hjá Breiðabliki myndi Benedikt hitta fyrir sinn gamla þjálfara, Jökul Elísabetarson.

Benedikt átti fínasta tímabil í vonbrigðaliði Stjörnunnar og er nú sagður vilja færa sig um set.
„Eiginlega eini ljósi punkturinn hjá Stjörnunni í sumar"
TENGT EFNI

„Eiginlega eini ljósi punkturinn hjá Stjörnunni í sumar"

Í Dr. Football er Benedikt sagður ósáttur við að Stjarnan ætli nú að æfa seinni part dags en þjálfarinn, Rúnar Páll Sigmundsson, er fastur á því að það verði gert. Hann talaði um að það væri rembingur að æfa á morgnana.

„Hann er ósáttur með að það sé verið að breyta æfingatímanum, hann fer í Stjörnuna þegar æft er fyrir hádegi og hann er greinilega hrifinn af því fyrirkomulagi. Honum finnst þetta kannski vera brot á því sem hann kvittaði fyrir," segir Viktor Unnar Illugason í þætti gærkvöldsins.

Einnig kom fram að Stjarnan vildi fá 20 milljónir króna fyrir Benedikt sem er samningsbundinn Stjörnunni út tímabilið 2028. Benedikt er 25 ára sóknarmaður sem skoraði níu mörk og lagði upp fimm mörk. Hann hefur einnig verið orðaður við Val.

Enginn sagst vera ósáttur
Fótbolti.net hafði samband við yfirmann fótboltamála hjá Stjörnunni, Viktor Bjarka Arnarsson, og hann hafði þetta að segja:

„Það er rétt að það eru félög sem hafa áhuga á Benedikt en ekkert formlegt tilboð komið. Við höfum rætt við alla leikmenn félagsins og það hefur ekki komið neitt upp varðandi ósætti við það að æfa klukkan 16:00, allavega ekki á þeim leikmannafundum sem hafa verið haldnir. Benedikt er leikmaður Stjörnunnar og mætir á æfingu í desember þegar við byrjum. Ég veit ekki hvort þessi saga sé einhver uppspuni eftir viðtalið við Rúnar, en ég kannast allavega ekki við þetta," segir Viktor sem vildi ekki tjá sig um slúðrið um 20 milljón króna verðmiðann.

„Það er eitthvað sem er innan klúbbsins og fer ekki út fyrir hann," segir Viktor.
Benedikt sagður ósáttur og með 20 milljóna verðmiða
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benedikt sagður ósáttur og með 20 milljóna verðmiða
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Bjarki er yfirmaður fótboltamála hjá V?ingi.

Viktor Bjarki er yfirmaður fótboltamála hjá V?ingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.