Fotbolti.net
23.11.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Ítalía: Með ellefu mörk í ellefu leikjum

Gustavo Varela

Gustavo Varela

Canon

Mynd: EPA

Monza 3 - 0 Fiorentina
1-0 Gustavo Varela ('45 , víti)
2-0 Gustavo Varela ('51 )
3-0 Jay Robinson ('59 )
Monza lyfti sér upp úr fallsæti og upp fyrir Fiorentina eftir sigur á þeim síðarnefndu í ítölsku deildinni í kvöld.

Gustavo Varela kom Monza yfir með marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Hann bætti síðan öðru markinu við snemma í seinni hálfleik með laglegri hælspyrnu eftir sendingu fyrir markið frá Matteo Pessina.

Varela hefur verið funheitur á tímabilinu en hann hefur skorað ellefu mörk í ellefu leikjum og er næst markahæstur í deildinni á eftir Donyell Malen, leikmanni Roma, sem hefur skorað tólf mörk.

Jay Robinson innsiglaði sigur Monza með marki eftir um klukkutíma leik.

Monza stökk úr 19. sæti upp í það fjórtánda og er með 10 stig eftir 12 umferðir. Fiorentina er með 9 stig í 16. sæti.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.