23.11.26 - 22:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Moyes: Tarkowski var á undan í boltann


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Everton steinlá 4-0 gegn Brentford í úrvalsdeildinni í kvöld. Keane Lewis-Potter skoraði fyrstu tvö mörkin í fyrri hálfleik.
James Tarkowski fékk að líta rauða spjaldið fyrir að fara með takkana í sköflunginn á Yehor Yarmolyuk undir lok fyrri hálfleiks. Moyes segist ekki vera viss um hvort Everton muni áfrýja dómnum.
James Tarkowski fékk að líta rauða spjaldið fyrir að fara með takkana í sköflunginn á Yehor Yarmolyuk undir lok fyrri hálfleiks. Moyes segist ekki vera viss um hvort Everton muni áfrýja dómnum.

TENGT EFNI
Tarkowski hljóp af velli áður en dómarinn sýndi honum rautt
„Mér fannst Tarki ná í boltann á undan, hann var klárlega kominn að honum á undan leikmanninum sem kom seint inn í þetta," sagði Moyes.
„En mér sýndist fóturinn á Tarki vera hátt á lofti, og í ljósi þess er mögulegt að dæma á þetta.“
„En mér sýndist fóturinn á Tarki vera hátt á lofti, og í ljósi þess er mögulegt að dæma á þetta.“
