Fotbolti.net
28.11.26 - 15:55
Brynjar Ingi Erluson

Slakur árangur United fer í sögubækurnar

Slakur árangur United fer í sögubækurnar
Canon

Mynd: EPA

Manchester United setti óskemmtilegt met í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið lenti 2-0 undir gegn Brentford á Old Trafford í dag.
Man Utd féll síðast þegar þetta gerðist
TENGT EFNI

Man Utd féll síðast þegar þetta gerðist

Callum Wilson hefur skorað tvö mörk gegn United og stefnir allt í enn eitt tap liðsins á tímabilinu.

Við sögðum fyrr frá því að United hefði ekki tekist að halda hreinu í fyrstu tólf deildarleikjum tímabilsins, en það hefur ekki gerst síðan tímabilið 1930-1931. Það tímabil endaði einmitt með því að liðið féll niður um deild.

En það er ekki allt, því United er einnig orðið fyrsta liðið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að fá á sig tvö mörk eða fleiri í sex hálfleikjum í röð.

Liðið fékk á sig tvö mörk í hvorum hálfleik gegn Liverpool og Aston Villa, auk þess að fá á sig tvö mörk í síðari hálfleik gegn Chelsea. Nú hefur Brentford svo bætt við tveimur mörkum í fyrri hálfleiknum á Old Trafford.


Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea12-116
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Nott. Forest12-512
15Coventry11-812
16Fulham11-211
17Ipswich Town11-711
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.