Fimm félög fyrir Andra Lucas í ensku úrvalsdeildinni

Andri Lucas Guðjohnsen.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Sesko hefur verið mikið meiddur.

Mynd: EPA

Andri í leik með íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

United hefur ekki riðið feitum hesti á leiktíðinni.

Mynd: EPA

Andri fagnar marki með íslenska landsliðinu.

Mynd: KSÍ

Tottenham vantar framherja.

Mynd: EPA

Richarlison er í kælinum hjá Spurs.

Mynd: EPA

Andri Lucas hefur verið iðinn við kolann hjá Blackburn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tölfræði Nottingham Forest á tímabilinu er ótrúleg.

Mynd: EPA

Thierno Barry, sóknarmaður Everton.

Mynd: EPA

Mateta virðist ekki hafa mikinn áhuga á að vera leikmaður Crystal Palace mikið lengur.

Mynd: EPA


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas Guðjohnsen.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 29. október á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Þú getur skráð þig með því að smella hérna.

Rýnt í ótrúlega tölfræði Andra - Lausn fyrir Man Utd?
Manchester United
Það er ótrúlegt að Manchester United hafi ekki bætt við sóknarmanni í sumar, sérstaklega í ljósi þess að Benjamin Sesko hefur glímt við meiðsli. United hefur átt erfitt með að skora og tölfræðin undirstrikar vandann.
Liðið hefur skorað tíu mörk úr 17,29 xG og 229 marktilraunum samkvæmt Transfermarkt. Það jafngildir aðeins 4,4 prósenta nýtingu miðað við heildarfjölda skota.
Umræða hefur verið meðal stuðningsmanna United um hvort Andri gæti verið áhugaverður kostur. Einn stuðningsmaður velti því upp á samfélagsmiðlum hvort félagið gæti fengið hann til að fylla upp í skarðið sem hefur myndast vegna tíðra meiðsla Sesko.

„Miðað við það sem ég hef séð virðist hann hafa fundið taktinn og mér finnst augljóst að hann gæti nýtt eiginleika sína í liðum á hæsta stigi,“ skrifaði stuðningsmaður Man Utd á X.
Það væri stórt skref fyrir Andra að ganga til liðs við eitt stærsta félag heims. Hann hefur þó sýnt að hann getur skilað mörkum án þess að þurfa mörg færi, eiginleika sem United þarf sannarlega á að halda. Það er líka ekki svo langt síðan Man Utd sótti leikmann með sérstaka eiginleika úr Championship-deildinni þegar félagið náði í hinn eldsnögga Daniel James frá Swansea.

Tottenham
Tottenham er annað félag þar sem markaskorunin hefur ekki verið nægilega góð. Liðið hefur átt 205 marktilraunir en aðeins skorað tíu mörk, sem jafngildir tæplega fimm prósenta nýtingu.
Tottenham er jafnframt með 14,53 xG og hefur því ekki fengið nægilega mikið út úr þeim færum sem liðið hefur skapað. Félagið þarf framherja sem er öruggur fyrir framan markið og getur breytt góðum sóknaraðgerðum í mörk.
Richarlison var markahæsti leikmaður Tottenham á síðasta tímabili, en staða hans hefur breyst á yfirstandandi tímabili og hann er í frystikistinum í varaliðinu.
Andri gæti verið áhugaverður kostur ef Tottenham fer í leit að framherja sem nýtir færin vel. Það er þó eitt að skora með Blackburn í Championship og annað að gera það reglulega í ensku úrvalsdeildinni, þar sem varnarmenn og hraði leiksins gera mun meiri kröfur.
Nottingham Forest
Nottingham Forest hefur átt sérstaklega erfitt uppdráttar fyrir framan markið, ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni hefur átt í meiri vandræðum. Liðið hefur aðeins skorað sex mörk úr 226 marktilraunum, sem jafngildir minna en þriggja prósenta nýtingu. Það er verulegt áhyggjuefni fyrir liðið.
Liam Delap hefur ekki staðið undir væntingum til þessa og aðrir sóknarmenn liðsins hafa ekki heldur skilað nægilega miklu. Forest hefur aðeins skorað sex mörk úr rúmlega 18 xG sem er fáránleg tölfræði.
Vandinn snýst bæði um að klára færin og um að fá nægilega mikið út úr sóknarleiknum. Framherji sem getur skilað mörkum úr takmörkuðum fjölda færa gæti verið mikilvæg viðbót. Andri hefur sýnt nákvæmlega þá eiginleika sem Forest gæti þurft á að halda.
Everton
Everton er einnig áhugaverður kostur, ekki síst vegna þess að stuðningsmenn félagsins hafa sjálfir bent á Andra Lucas á samfélagsmiðlum.
Einn stuðningsmaður skrifaði á X að Andri gæti verið raunhæfur kostur til að leysa Thierno Barry af hólmi og taldi að félagið gæti mögulega fengið hann fyrir um 20 milljónir punda.

Everton hefur skorað níu mörk úr 173 marktilraunum og er með 13,99 xG. Liðið hefur því ekki fengið nægilega mikið út úr sóknarleiknum og þarf framherja sem skilar meira úr færunum sem liðið er að fá.
Crystal Palace
Crystal Palace er fimmta félagið sem vert er að nefna. Óvissa hefur verið um framtíð Jean-Philippe Mateta sem virðist ekki hafa mikinn áhuga á að spila fyrir félagið.
Palace hefur skorað níu mörk úr 13,86 xG samkvæmt tölunum frá WyScout. Liðið hefur því ekki nýtt færin sín nægilega vel og mætti bæta markaskorunina.
Andri gæti hentað félaginu ef það leitar að framherja sem er beinskeyttur, vinnur vel úr þeim færum sem hann fær og getur skilað mörkum.
Það er þó engin staðfesting á því að Palace sé að eltast við Andra. Hér er fyrst og fremst horft til þess hvort leikmaður með hans eiginleika gæti mætt þörfum liðsins.

Rýnt í ótrúlega tölfræði Andra - Lausn fyrir Man Utd?

Sesko hefur verið mikið meiddur.

Mynd: EPA

Andri í leik með íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

United hefur ekki riðið feitum hesti á leiktíðinni.

Mynd: EPA

Andri fagnar marki með íslenska landsliðinu.

Mynd: KSÍ

Tottenham vantar framherja.

Mynd: EPA

Richarlison er í kælinum hjá Spurs.

Mynd: EPA

Andri Lucas hefur verið iðinn við kolann hjá Blackburn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tölfræði Nottingham Forest á tímabilinu er ótrúleg.

Mynd: EPA

Thierno Barry, sóknarmaður Everton.

Mynd: EPA

Mateta virðist ekki hafa mikinn áhuga á að vera leikmaður Crystal Palace mikið lengur.

Mynd: EPA


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
