
Alþingismaðurinn og grínistinn Jón Gnarr segist vera byrjaður að halda með ÍR í fótbolta.
Í nýju myndbandi sem hann birtir á samfélagsmiðlinum Facebook útskýrir hann af hverju svo er.
Í nýju myndbandi sem hann birtir á samfélagsmiðlinum Facebook útskýrir hann af hverju svo er.
„Ég hef í nokkurn tíma verið að leita mér að fótboltafélagi íslensku til að halda með. Hingað til hef ég haldið með öllum og engum, en nú ætla ég að breyta því og er búinn að velja mér lið," segir Jón.
„Það sem hefur helst truflað mig er þessi tilhneiging Íslendinga að kalla fótbolta knattspyrnu. Þetta orð er komið frá Bjarna Jónssyni frá Vogi sem fann upp þetta nýyrði árið 1910 og mér bara leiðist þetta... Þetta er fótbolti fyrir mér og það er eðlilegt mál - hitt er bara eitthvað skrítið."
Jón er uppalinn í Fossvogi og æfði með Víkingi en segist ekki geta haldið með Víkingi þar sem þeir kalla sig Knattspyrnufélagið Víkingur. „Það gengur ekki fyrir mér."
„Svo gæti ég líka verið Valsari því ég lék Valla Valsara í Íslenska drauminum. Svo á ég barnabarn sem æfir með Val. Það væri borðliggjandi en þeir kalla sig Knattspyrnufélagið Valur og ég get ekki samþykkt svoleiðis."
Jón hefur þá búið í Vesturbænum í 30 ár en jú, KR er Knattspyrnufélag Reykjavíkur.
„Ég er búinn að finna eitt lið sem ég svo sannarlega haldið með og það er ÍR. Ég get haldið með ÍR þar sem ÍR heitir bara Íþróttafélag Reykjavíkur, ekkert knattspyrna neitt," segir Jón og nefnir svo fleiri ástæður fyrir því af hverju hann ætlar að halda með ÍR en meðal annars hefur hann æft júdó þar og er Ingigerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri ÍR, frænka hans.
Það er býsna gott að vera ÍR-ingur í dag en karlalið félagsins er sem stendur á toppi Lengjudeildarinnar.
Athugasemdir