23.11.26 - 16:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kári Árna: Er á þannig aldri að hann þarf að spila
Hefur alla burði til að verða markmaður á hæsta kaliberi

Ólafur Örn hefur verið aðalmarkvörður HK í Lengjudeildinni síðustu tvö tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Víkingur

Ögmundur og Aron Snær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jochum á að baki níu leiki fyrir yngri landsliðin.

Íslandsmeistararnir í Víkingu gengu á föstudag frá kaupum á Ólafi Erni Ásgeirssyni frá HK. Ólafur, sem fæddur er árið 2003, mun spila áfram hjá HK á næsta tímabili, á láni frá Víkingi.
Fótbolti.net ræddi við Kára Árnason, sem er yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, um markmannsmálin.

TENGT EFNI
Víkingur greiðir HK sjö milljónir og upphæðin getur hækkað
„Það er allt í skoðun, við erum með stóran hóp og erum að skoða þetta í rólegheitum," segir Kári aðspurður hvort að Víkingar séu að skoða að fá inn annan markvörð.
Ögmundur verður ekki áfram
Ögmundur Kristinsson er með lausan samning, eruð þið að ræða við hann?
„Nei, við erum ekki að ræða við hann. Hann kom inn í þetta, var flottur liðsmaður hjá okkur en spilaði lítið, var smá meiddur. Hann leysti það sem þurfti að leysa. Hann verður ekki áfram."
Jochum verður eflaust hluti af hópnum seinna meir
Aron Snær Friðriksson var aðalmarkvörður Víkings á liðnu tímabili, steig inn þegar Ingvar Jónsson greindist með alvarleg veikindi. Uggi Jóhann Auðunsson spilaði lokaleik tímabilsins í marki Víkings og Jochum Magnússon lék á láni með Völsungi hluta tímabilsins og stóð sig vel.
„Jochum er farinn út í skóla, hann er flottur markmaður, tæknilega gríðarlega góður. Hann verður eflaust partur af okkar hóp seinna meir, en hann er í skóla núna. Hann æfir með okkur á sumrin, en fókusinn er á skólann og hann spilar þar."
Hefur alla burði til að verða markmaður á hæsta kaliberi
Var þetta nálægt því að þróast þannig að Óli kæmi strax frá HK?
„Við hugsuðum það alveg, en hann er á þannig aldri að hann þarf að spila. Því meiri reynsla sem hann fær, því betra er það fyrir okkur. Hann er á ágætis stað, með frábæran markmannsþjálfara og það eru sumir hlutir sem hann þarf að bæta sig í. M.a. uppspil og annað eins og sást í æfingaleiknum sem HK spilaði á dögunum. Hann þarf að verða betri í að vega og meta áhættur, hvenær sé got að taka sénsa og hvenær ekki."
„Hann er gríðarlega mikið efni og hefur alla burði til að verða markmaður á hæsta kaliberi og við ætlumst til mikils af honum. Hann þarf að fá eitt ár í viðbót þar sem hann spilar alla leiki og eitthvað er undir," segir Kári.