Fotbolti.net
23.11.26 - 16:54
Elvar Geir Magnússon

Magnús Daði aftur til æfinga hjá Bayern

Magnús Daði Ottesen.

Magnús Daði Ottesen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Magnús Daði Ottesen, framherji Fylkis, heldur í dag í annað sinn til æfinga hjá þýska stórliðinu Bayern München. Árbæjarfélagið tilkynnir þetta á samfélagsmiðlum sínum.

Þessi 15 ára gamli leikmaður var á dögunum valinn efnilegasti leikmaður Fylkis en hann verður 16 ára þann 30. nóvember næstkomandi.
Heimir: Best að spyrja foreldra hans að því
TENGT EFNI

Heimir: Best að spyrja foreldra hans að því

Magnús Daði átti frábært tímabil með Fylki í sumar. Hann lék 21 leik með meistaraflokki og skoraði fimm mörk, auk þess að skora 10 mörk í 9 leikjum með 2. og 3. flokki. Þá hefur hann einnig látið til sín taka með yngri landsliðum Íslands og skorað sex mörk í sex landsleikjum með U16 og U17.

„Magnús Daði verður í viku við æfingar hjá þýsku meisturunum sem hafa haldið áfram að fylgast vel með þróun hans og þroska sem leikmanns eftir að hann fór þangað á reynslu í fyrra," segir í færslunni frá Fylki.

„Það þarf varla að taka það fram að þetta er ótrúlegt tækifæri fyrir Magnús Daða og við í Fylki erum verulega stolt af okkar manni og óskum honum góðs gengis á æfingunum sem fram undan eru í Þýskalandi."

Magnús Daði er sonur Sölva Geirs Ottesen og Söndru Karlsdóttur. Sandra lék á sínum ferli með Breiðabliki og ÍBV. Sölvi er í dag þjálfari Víkings og var á sínum ferli bæði landsliðs- og atvinnumaður erlendis.
Magnús Daði aftur til æfinga hjá Bayern
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.