PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
Af hverju er þessi leikur svona mikilvægur?
Eimskip
Ísland er að stefna á það að komast inn á HM.
Ísland er að stefna á það að komast inn á HM.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Úr fyrri leiknum gegn Úkraínu sem Ísland vann 1-0.
Úr fyrri leiknum gegn Úkraínu sem Ísland vann 1-0.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland mætir Úkraínu í dag í undankeppni HM. Flautað verður til leiks klukkan 16:00 og verður hægt að fylgjast með öllu á Fótbolti.net; textalýsingu, viðtölum og öllu því helsta.

Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei komist í lokakeppni HM og það er stórt markmið núna. Til að halda sem best í þá von er afar mikilvægt að ná í stig gegn Úkraínu í dag, jafntefli eða sigur.

Staðan í riðlinum
England - 12 stig
Spánn - 9 stig
Ísland - 3 stig
Úkraína - 0 stig

England og Spánn eru í sérflokki í riðlinum, eins og flestir bjuggust við. Spánn er ríkjandi heimsmeistari á meðan England er ríkjandi Evrópumeistari eftir sigur á Spánverjum í úrslitaleik í fyrra.

Sigurvegari riðilsins fer beint á HM en hin þrjú liðin fara í umspil. Þar sem öll liðin í riðlinum eru í A-deild Þjóðadeildarinnar hafa þau þegar tryggt sér sæti í umspilinu.

Þriðja sætið skiptir öllu máli
Fyrir Ísland snýst baráttan fyrst og fremst um að enda í þriðja sæti frekar en því fjórða.

Liðin sem enda í öðru eða þriðja sæti í A-deildar riðlunum fara í svokallaða leið eitt í umspilinu og mæta þar liðum úr C-deild í fyrstu umferð. Lið sem enda neðst í riðlinum fara hins vegar í leið tvö og mæta liðum úr B-deild.

Munurinn er verulegur. Með því að enda í þriðja sæti eykur Ísland líkurnar á að komast í lokakeppni HM töluvert, enda myndi liðið þá forðast mörg af sterkustu landsliðum Evrópu í umspilinu. Eins og staðan er núna myndi Ísland forðast Spán, Noreg og Frakkland í umspilinu.

Sextán lið komast áfram úr fyrstu umferð umspilsins og mætast síðan í annarri umferð, þar sem lið úr leið eitt dragast gegn liðum úr leið tvö. Að lokum standa átta sigurvegarar eftir. Sjö þeirra komast beint á HM á grundvelli árangurs í undankeppninni, en það lið sem er með slakastan árangur fer í alþjóðlegt umspil gegn þjóðum frá öðrum heimsálfum.

Með sigri eða jafntefli gegn Úkraínu í dag tryggir Ísland sér þriðja sætið í riðlinum. Í stóra samhenginu gætu þau úrslit reynst gríðarlega mikilvæg í baráttunni um sögulegt HM-sæti.
Slapp
banner
banner