26.07.26 - 12:49
Brynjar Ingi Erluson
Richarlison á skotskónum fyrir Tottenham

Richarlison skoraði seinna mark Tottenham

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi og lærisveinar hans í Tottenham unnu Auckland FC, 2-0, í æfingaferð liðsins um Eyjaálfu í nótt.
Tottenham hafði betur gegn Auckland í æfingaleik í samnefndri borg á Nýja-Sjálandi.
Dane Scarlett kom Tottenham yfir. Þessi 22 ára gamli framherji er uppalinn hjá félaginu en hefur fengið fá tækifæri með aðalliðinu undanfarin ár.
Scarlett varð á sínum tíma yngsti leikmaðurinn í sögu Tottenham til að spila keppnisleik fyrir félagið. Síðan þá hefur hann farið á nokkur lán en tekur nú þátt í undirbúningstímabilinu með Lundúnaliðinu.
Brasilíski framherjinn Richarlison skoraði síðara mark Tottenham eftir frábæran undirbúning Mathys Tel.
Sandro Tonali, sem gekk til liðs við Tottenham frá Newcastle á dögunum, kom ekki við sögu. Mateus Fernandes kom hins vegar inn af bekknum og japanski landsliðsmaðurinn Kota Takai var í byrjunarliðinu ásamt nokkrum ungum leikmönnum.
Tottenham mætir Sydney FC eftir þrjá daga og síðan Chelsea áður en liðið heldur aftur heim til Lundúna.