PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 14:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mielec
Byrjunarlið Íslands - Svona leysum við Sveindísi af hólmi
Eimskip
Thelma Karen byrjar.
Thelma Karen byrjar.
Mynd: KSÍ - Arnar Laufdal
Emilía byrjar.
Emilía byrjar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að opinbera byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Úkraínu í undankeppni HM á eftir. Flautað verður til leiks klukkan 16:00 að íslenskum tíma og hægt verður að fylgjast með honum í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.

Sveindís Jane Jónsdóttir er auðvitað ekki með vegna meiðsla en sóknarlínuna í hennar fjarveru skipa Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, Sandra María Jessen og Thelma Karen Pálmadóttir. Annars er liðið frekar hefðbundið.

Lestu um leikinn: Úkraína 0 -  0 Ísland

Byrjunarlið Íslands:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
5. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
16. Hildur Antonsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
20. Thelma Karen Pálmadóttir


Slapp
banner
banner