Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 05. júlí 2020 18:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Vindurinn gerði báðum liðum erfitt fyrir
Mynd: Getty Images
„Þetta var mjög erfiður leikur af mörgum mismunandi ástæðum," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 2-0 sigur á Aston Villa.

„Villa voru mjög skipulagðir og vindurinn gerði báðum liðum mjög erfitt fyrir."

Liverpool er meistari og er núna með 89 stig. Aston Villa er í 18. sæti, einu stigi frá öruggu sæti.

„Við fengum fleiri góð augnablik í seinni hálfleiknum. Það var augljóst að við þurfum tíma til að venjast aðstæðum. Við erum á þeim stað þar sem við erum því við vinnum erifða leiki."

Liverpool á möguleika á að bæta stigamet Man City sem er 100 stig. „Það eina sem ég get sagt er að þú bætir engin met ef þú er stanslaust að hugsa um að bæta met," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner