Fotbolti.net
05.07.21 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stuðningsmenn City vilja hann burt - „Ég skal skutla honum"

Stuðningsmenn City vilja hann burt - „Ég skal skutla honum"
Canon

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörðurinn Benjamin Mendy er orðaður í burtu frá Manchester City.
City Xtra er miðill sem færir allskonar fréttir af Man City en það kom færsla á Twitter síðunni þeirra að Inter Milan hefði áhuga á Mendy.

Mendy hefur ekki verið í stóru hlutverki síðan hann gekk til liðs við félagið árið 2017 en hann lék aðeins 20 leiki á síðustu leiktíð.

Stuðningsmenn City virðast vera búnir að gefast upp á honum og margir hafa látið skoðun sína í ljós á twitter þar sem einn býður sig fram til að skutla honum til Ítalíu.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.