Fotbolti.net
05.09.26 - 17:02
Brynjar Ingi Erluson

2. deild: Selfoss vann toppslaginn og er skrefi nær Lengjudeildinni - Hvíti riddarinn fallinn

Selfyssingar eru skrefi nær Lengjudeildinni

Selfyssingar eru skrefi nær Lengjudeildinni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Selfoss er aðeins einu stigi frá því að komast upp í Lengjudeild karla eftir að hafa unnið topplið Hauka, 2-1, í næst síðustu umferð 2. deildarinnar í dag. Hvíti riddarinn er fallinn niður í 3. deild.
Selfyssingar vissu að sigur á deildarmeisturum Hauka myndi færa þá nær því að snúa aftur í Lengjudeildina.

Það tók þá aðeins fimm mínútur að komast yfir. Viðar Örn Kjartansson var tekinn niður í teignum en boltinn féll fyrir Brynjar Bergsson sem skoraði með skoti í vinstra hornið.

Frosti Brynjólfsson tvöfaldaði forystuna þegar rúmur hálftími var liðinn með frábæru skoti rétt utan teigs sem söng í netinu.

Staða Hauka versnaði enn frekar strax í upphafi síðari hálfleiks. Tómas Atli Björgvinsson, sem hafði fengið gult spjald undir lok þess fyrri, fékk þá sitt annað gula og þar með rautt.

Tíu Haukamenn náðu þó að minnka muninn tuttugu mínútum fyrir leikslok þegar Daði Snær Ingason skoraði eftir darraðardans í kjölfar hornspyrnu.

Lengra komust gestirnir ekki og Selfyssingar fögnuðu 2-1 sigri. Þeir þurfa nú aðeins eitt stig til viðbótar til að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni. Sætið gæti raunar verið í höfn síðar í dag ef Kári tapar stigum gegn Magna.

KFG vann dýrmætan 4-1 sigur á Víkingi Ó í fallbaráttunni. Franz Bergmann Heimisson skoraði tvívegis fyrir Garðbæinga sem lyftu sér úr fallsæti og upp í 10. sæti með 22 stig.

Þróttur Vogum er því í fallsæti fyrir lokaumferðina með 20 stig eftir 1-1 jafntefli við Fjölni.

Hvíti riddarinn er fallinn eftir 4-3 tap fyrir Kormáki/Hvöt á heimavelli. Liðið er neðst með 17 stig og fimm stigum frá öruggu sæti fyrir lokaumferðina.

Haukar 1 - 2 Selfoss
0-1 Brynjar Bergsson ('5 )
0-2 Frosti Brynjólfsson ('33 )
1-2 Daði Snær Ingason ('71 )
Rautt spjald: Tómas Atli Björgvinsson, Haukar ('46) Lestu um leikinn

KFG 4 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Róbert Kolbeins Þórarinsson ('22 )
2-0 Franz Bergmann Heimisson ('54 )
3-0 Ólafur Viðar Sigurðsson ('64 )
3-1 Abdelhadi Khalok El Bouzarrari ('77 )
4-1 Franz Bergmann Heimisson ('86 )

Fjölnir 1 - 1 Þróttur V.
1-0 Árni Steinn Sigursteinsson ('24 )
1-1 Danny De Lorijn ('70 )

Hvíti riddarinn 3 - 4 Kormákur/Hvöt
0-1 Sten Reinkort ('13 )
0-2 Pere Belmonte ('28 )
1-2 Alexander Aron Tómasson ('37 )
1-3 Sten Reinkort ('45 )
2-3 Jordan Chase Tyler ('50 )
2-4 Pere Belmonte ('90, víti )
3-3 Birkir Örn Baldvinsson ('90 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar21+2747
2Selfoss21+1842
3Kári20+2136
4KFA20+1129
5Víkingur Ó.21-1228
6Kormákur/Hvöt21+527
7Fjölnir21+227
8Dalvík/Reynir20-425
9Magni20-1625
10KFG21-1922
11Þróttur V.21-1020
12Hvíti riddarinn21-2317
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.