05.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Grindavík/Njarðvík fær liðsstyrk frá Keflavík (Staðfest)


Mynd: Grindavík/Njarðvík


Mynd: Grindavík/Njarðvík

Grindavík/Njarðvík er búið að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir næstu leiktíð eftir að hafa krækt í Anítu Bergrán Eyjólfsdóttur úr röðum nágranna sinna í Keflavík.
Aníta Bergrán er fædd árið 2006 og gerir þriggja ára samning við G/N, sem tekur gildi um áramótin og gildir til gamlársdags 2029.
Aníta er öflugur miðjumaður sem er með 90 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ að baki þrátt fyrir ungan aldur.
Hún á leiki að baki í efstu deildum og skoraði 3 mörk í 16 leikjum í Lengjudeildinni í sumar.
Aníta er öflugur miðjumaður sem er með 90 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ að baki þrátt fyrir ungan aldur.
Hún á leiki að baki í efstu deildum og skoraði 3 mörk í 16 leikjum í Lengjudeildinni í sumar.
