05.10.26 - 16:43
Elvar Geir Magnússon
Gummi Stef frá Selfoss í Fram (Staðfest)

Guðmundur Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðmundur Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Miðjumaðurinn Guðmundur Stefánsson hefur yfirgefið Selfoss og er búinn að skrifa undir samning við Fram í Bestu deildinni.
Þessi tvítugi leikmaður steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Selfossi sumarið 2025 áður en hann var lánaður til nágrannana í Ægi.

„Ég er þakklátur fyrir tímann á Selfossi og allt fólkið sem ég hef kynnst á leiðinni. Liðsfélagar, þjálfarar, fólkið í kringum félagið og allir sem hafa mætt á völlinn og stutt okkur — takk fyrir allt,” segir Guðmundur um viðskilnaðinn við samfélagsmiðla Selfoss.
„Miðjumaðurinn knái átti frábært nýafstaðið tímabil og stimplaði sig inn sem algjöran lykilmann í liðinu. Hann spilaði 36 leiki, skoraði sex mörk og var á lokahófi félagsins á dögunum valinn miðjumaður ársins ásamt því að hljóta viðurkenningu fyrir mestu framfarir. Selfoss þakkar Guðmundi fyrir hans framlag í Selfosstreyjunni og óskar honum góðs gengis á nýjum vettvangi," segir í tilkynningu félagsins.
Selfoss hafnaði í öðru sæti 2. deildar og komst þar með upp í Lengjudeildina. Auk þess bar liðið sigur úr býtum í Gatorade bikar Fótbolta.net.