Sævar Péturs: Mun flóknara en virðist við fyrstu sýn

Sævar Pétursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA fagnar marki í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar er mikill KA-maður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skjöldurinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar Pétursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirkomulagið hefur verið mikil til umræðu upp á síðkastið og nýverið settu KSÍ og ÍTF upp spretthópa vegna umræðu innan fótboltahreyfingarinnar um keppnisfyrirkomulagið í Bestu deildinni, bæði karla og kvenna.
„Mikið hefur verið rætt um Íslandsmótið í knattspyrnu síðustu daga og mér finnst margt vera sagt út frá stöðunni í ár en ekki endilega út frá staðreyndum eða tölfræðigögnum sem er oftast best að líta til þegar menn fara fram með slík mál,“ skrifar hann.
Erfitt að byrja fyrr
Sævar rifjar upp markmiðin með breytingunum sem gerðar voru á Íslandsmótinu á sínum tíma. Þá hafi verið lögð áhersla á að fjölga leikjum og lengja keppnistímabilið, en íslensk lið hafi áður verið í keppni í aðeins fimm til fimm og hálfan mánuð og undirbúningstímabilið tekið nær sex mánuði.
Hann telur þó erfitt að færa upphaf Íslandsmótsins mikið fyrr vegna alþjóðlega leikjadagatalsins.
„Þannig að byrja Íslandsmótið eitthvað fyrr heldur en hefur verið gert undanfarin ár er í raun og veru ekki raunhæft þar sem landsleikjagluggi er í lok mars,“ skrifar Sævar og bendir jafnframt á að veðurfar sé mun hagstæðara á Íslandi í október en í mars.
Þá þurfi einnig að taka mið af álagi á bestu liðin yfir sumarið.
„Ef samantekt mín klikkar ekki þá sýnist mér að Víkingur hafi spilað 24 leiki á 99 dögum í sumar á milli landsleikjaglugga í júní og svo aftur í september. Þetta gerir leik á sirka 4,15 daga fresti yfir þetta tímabil.“
Ekki vilji til að fara aftur í nóvember
Sævar gerir einnig athugasemd við umræðuna um að leikjum í október sé lítið gagn.
„Þegar sumir þjálfarar og leikmenn tala núna um að það sé galið að vera að keppa einhverja tilgangslausa leiki út október þá held ég að enginn þeirra hafi áhuga á því að skipta þeim leikjum út fyrir leiki í Bose-mótinu eða einhverju slíku æfingamóti í nóvember í skítaveðri fyrir framan sirka 12 áhorfendur.“
Hann telur því mikilvægt að horfa á heildarmyndina. Ef keppnistímabilinu yrði flýtt myndi það að einhverju leyti þýða að æfingar og æfingaleikir færðust aftur inn í nóvember og desember.
Sævar bendir jafnframt á að leikmenn séu almennt ekki að sækjast eftir styttri samningum.
„Enginn þjálfari eða leikmaður vill heldur fara á styttri samning en 12 mánuði og því skrýtið að heyra menn tala um hvað þetta sé erfitt að taka þátt í október en eru samt á launum í 12 mánuði á ári.“
Fjölgun í 14 lið ekki endilega lausnin
Að mati Sævars sé fjöldi liða þó ekki endilega stærsta málið. Hann telji mikilvægt að styrkja undirbúningsmótin og gera þau áhugaverðari.
„Hvort mótið er síðan spilað með 12 félögum í efstu deild eða 14 og 27 leikjum eða 26 leikjum er ekki stóra málið í mínum huga.“
Hann telur mikilvægt að umfjöllunin um deildina sé tekið inn í myndina.
„Að fara í 14 liða deild fjölgar leikjum um sirka 20 ef ég er að telja þetta rétt og mun í raun og veru valda minni athygli eða umfjöllun á suma leiki sem verður ekki gott.“
„Minni umfjöllun er ekki endilega það sem Besta deildin þarf á að halda að mínu mati, en skil vel rökin með að keppa hefðbundið mót þar sem allir spila heima og heiman við öll önnur félög. Einnig þarf í þessu samhengi að hugsa út í það hvaða afleiðingar þetta hefur á deildirnar fyrir neðan.“
Málið er mun flóknara
Sævar segir að umræðan þurfi því að taka mið af fleiri þáttum en bara fjölda liða og leikja.
„Málið er mun flóknara en að byrja bara aðeins fyrr, eða fjölga leikjum yfir sumarið.“
Hann telur jafnframt að margir leikmenn vilji ekki fara aftur í gamla fyrirkomulagið þar sem keppnistímabilinu lauk í september og undirbúningur fyrir næsta tímabil hófst strax í nóvember.
„Held líka að ef þú raunverulega spyrð leikmenn þá sé ekki mikill áhugi hjá þeim að fara aftur til fyrri tíma þar sem tímabilið klárast í lok sept og þeir mæti til æfinga aftur í byrjun nóv og fara að æfa og spila úti við alls konar aðstæður í nóv/des í stað þess að klára keppnistímabilið í lok okt og fá frí í nóv.“
Sævar segir að því þurfi að skoða fyrirkomulagið frá mörgum sjónarhornum áður en stórar breytingar verði gerðar. „Þannig að ákvörðun um stórar breytingar eins og núna er verið að ræða þarf að skoða út frá mörgum sjónarhornum og er mun flóknara en virðist við fyrstu sýn.“

KA fagnar marki í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar er mikill KA-maður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skjöldurinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
