24.11.26 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Fjalla um erfiðleika De Bruyne í Napólí

Kevin De Bruyne.

Mynd: EPA

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kevin De Bruyne.

Mynd: EPA
Miklar vonir voru bundnar við skipti Kevin De Bruyne frá Manchester City til Napoli árið 2025. En tími belgíska miðjumannsins, sem er einn fremsti leikmaður sinnar kynslóðar, hefur reynst erfiður.
Napoli varð Ítalíumeistari tímabilið fyrir komu De Bruyne en liðið situr nú í áttunda sæti ítölsku A-deildarinnar og er í 27. sæti í Meistaradeildinni.
De Bruyne, sem er 35 ára, var sigursæll á tíma sínum hjá Manchester City, vann sextán titla á tíu árum, og snýr aftur á Etihad völlinn í kvöld þegar City fær Napoli í heimsókn í Meistaradeildinni. Tími hans hjá Napoli hefur alls ekki verið baðaður í sama dýrðarljóma.

TENGT EFNI
De Bruyne: Vil sýna fólki að ég get enn spilað
BBC fjallar um erfiðleika hans á Ítalíu. Fyrsta tímabil hans hjá Napoli var hann mikið fjarverandi vegna meiðsla aftan í læri. Napoli endaði í öðru sæti á eftir Inter og De Bruyne sagðist ánægður með að Antonio Conte lét af störfum því loforð um leikstíl hafi ekki verið efnd.
De Bruyne er ekki lengur í jafnmiklu sóknarhlutverki á miðjunni. Endurnýjun liðsins hefur setið á hakanum og það hefur verið í erfiðleikum undir stjórn Massimiliano Allegri. De Bruyne hefur verið einn besti leikmaðurinn en liðinu vegnar illa.
De Bruyne virðist oft pirraður og í leik gegn Porto reifst hann við samherja sinn, framherjann Lorenzo Lucca, svo liðsfélagar hans neyddust til að grípa inn í til að stilla til friðar.
Í september fór eiginkona De Bruyne í viðtal í Belgíu og sagði frá löngun þeirra til að flytja aftur heim. Hún sagði „því fyrr sem við komum þangað, því betra“ þar sem leikmaðurinn lifi „mjög takmörkuðu lífi“ í Napólí. Úr varð mikið fjölmiðlafár sem fór í taugarnar á De Bruyne.

Heimild: BBC

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir