24.11.26 - 10:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjórar unglingalandsliðskonur skrifa undir hjá FH

Hildur Katrín skrifar undir samning til 2029.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórir mjög efnilegir leikmenn hafa skrifað undir hjá FH að undanförnu. Allar eiga þær að baki leiki fyrir yngri landsliðin.
Hildur Katrín Snorradóttir er elst, fædd árið 2008 og lék fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Grindavík/Njarðvík og spilaði vel. Hún er hluti af U19 landsliði Íslands og á alls að baki 16 leiki fyrir yngri landsliðin. Hún spilaði níu deildarleiki með FH og fjóra Evrópuleiki. „Við bindum miklar vonir við Hildi Katrínu í framtíðinni," segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, við undirskrift Hildar sem gerir samning til 2029.
Eva Marín Sæþórsdóttir er fædd árið 2009 og á að baki fimm leiki fyrir yngri landsliðin. Hún kom við sögu í einum Evrópuleik og sex deildarleikjum í sumar. „Eva Marín er mikill markaskorari og má til gamans geta að hún spilaði 17 leiki og skoraði í þeim 39 mörk með 2.flokki kvenna í sumar," segir Davíð. Eva semur sömuleiðis til 2029.

Fyrr í þessum mánuði skrifuðu tveir leikmenn fæddir 2009 undir hjá FH. Freyja Rún Pálmadóttir er uppalin FH-ingur sem á að baki sex leiki fyrir unglingalandsliðin. Hún kom við sögu í tveimur deildarleikjum í sumar. Freyja, sem er fjölhæfur sóknarmaður, skrifar undir tveggja ára samning.
Þórdís Lilja Jónsdóttir er sömuleiðis uppalin og á að baki sex leiki fyrir unglingalandsliðin. Hún lék með 2. og 3. flokki í sumar. Þórdís, sem er hraður örvfættur bakvörður, skrifar undir þriggja ára samning við FH.