Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 05. desember 2019 21:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía: Cagliari með tak á Sampa - Hernani hetja Parma
Mynd: Getty Images
Í vikunni fóru fram 32-liða úrslitin í ítölsku bikarkepninni, Coppa Italia. Lokaleikir 32-liða úrslitanna fóru fram í kvöld.

Í fyrri leik kvöldsins lagði Parma lið Frosinone, 2-1. Luca Siligardi og Hernani gerðu mörk Parma en Marcelo Trotta skoraði mark Frosinone. Mark Hernani kom undir lok leiksins og tryggði Parma sigurinn, markið kom úr vítaspyrnu.

Cagliari mætti Sampdoria öðru sinni í vikunni. Liðin mættust á mánudag í stórskemmtilegum sjö marka leik.

Þar kom Cagliari til baka í seinni hálfleik og sigraði 4-3. Í kvöld sigraði Cagliari einnig, Alberto Cerri og Daniele Ragatzu skoruðu mörk Cagliari í kvöld. Varamaðurinn Manolo Gabbiadini skoraði mark fyrir Sampdoria þegar skammt var til leiksloka en lengra komst Sampdoria ekki.

Nú þegar hefur verið dregið í 16-liða úrslitin. Viðureignirnar má sjá hér að neðan, leikið verður dagana í kringum 15. janúar.

16-liða úrslitin
Napoli - Perugia
Lazio - Cremonese
Atalanta - Fiorentina
Cagliari - Inter
AC Milan - Spal
Torino - Genoa
Roma - Parma
Juventus - Udinese
Athugasemdir
banner
banner
banner