Bæði Brighton og Leicester þurfa á stigum að halda í kvöld er liðin mætast í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Brighton er í harðri fallbaráttu og er aðeins þremur stigum frá Fulham sem situr í 18. sæti deildarinnar.
Sigur myndi gera mikið fyrir Brighton í fallslagnum og það sama má segja um Leicester og Evrópubaráttu liðsins.
Leicester er í þriðja sæti deildarinnar með 50 stig og getur komist í annað sætið með sigri í kvöld. Liðið er einu stigi á eftir Manchester United í öðru sæti.
Hér má sjá byrjunarliðin í kvöld.
Brighton: Sánchez; Veltman, White, Dunk, Burn; Bissouma, Gross; Mac Allister, Lallana, Trossard; Maupay
Leicester: Schmeichel; Amartey, Söyüncü, Fofana; Ndidi; Ricardo Pereira, Tielemans, Tavares, Castagne; Vardy, Iheanacho.
Athugasemdir