Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   mán 06. apríl 2020 14:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Berbatov hrósar Ighalo: Kom mér á óvart
Odion Ighalo.
Odion Ighalo.
Mynd: Getty Images
Dimitar Berbatov fyrrum leikmaður Manchester United fylgist vel með því hvað hans gamla félag er að gera. Hann segir að frammistaða Odion Ighalo sem kom á láni frá Kína í janúar hafi komið sér á óvart.

Vangaveltur hafa verið uppi um það undanfarnar vikur hvort Manchester United tryggi sér þjónustu Ighalo til frambúðar, Nígeríumaðurinn hefur komið mörgum á óvart með frammistöðu sinni. Berbatov ræddi um þær vangaveltur við Goal.

„Ef Ighalo heldur áfram að spila eins og hann hefur verið að gera, skora mörk og hjálpa liðinu, held ég að United ætti að semja við hann til frambúðar. Sancho og Kane eru þau tvö nöfn sem mest eru orðuð við félagið þessa dagana, félagið þarf því að vega og meta á hvaða leið þeir eru," sagði Berbatov.

„Vilja þeir kaupa nýja framherja? Ef svo er væri skrítið ef þeir myndu halda Ighalo. En eins og staðan er núna sé ekki fyrir mér að þeir muni eyða miklu og ég held að það væri góð lausn að halda Ighalo," sagði Dimitar Berbatov.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner