Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   fim 06. maí 2021 22:17
Baldvin Már Borgarsson
Steini: Þetta var B12, þeir héldu bara að þeir væru að fá Janssen
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við byrjuðum leikinn gríðarlega sterkt, okkur tókst það sem við ætluðum okkur og settum á þá þrjú mörk og í raun hefðum við getað sett á þá önnur þrjú mörk í fyrri en þetta Víkingslið er mjög gott og ég er mjög ánægður með þetta," sagði Aðalsteinn Aðalsteinsson, þjálfari Fram, í viðtali við Fótbolta.net eftir sigur á Víkingi Ólafsvík.

Fram var komið í 3-0 eftir fimm mínútur og komst í 4-0 snemma í seinni hálfleik áður en Ólsarar minnkuðu muninn.

Lestu um leikinn: Fram 4 -  2 Víkingur Ó.

„Við erum með góðan hóp, mikla breidd en samt með marga menn fjarverandi í dag. Samkeppnin er mikil og við erum á réttri lið."

Sex eða sjö leikmenn voru, samkvæmt fréttaritara, bólusettir með Janssen bóluefninu í gær. Margir hafa veikst eftir bólusetningar en sprautan virtist ekki hafa neikvæð áhrif á Framara.

„Þetta var ekki Janssen, þetta var B12 (vítamín), þeir héldu bara að þeir væru að fá Janssen. Við vorum klárir í leikinn og því sem fór."

„Við erum að stefna upp úr þessari deild, það er alveg klárt og hvítt. En það labbar enginn upp úr þessari deild en það er alltaf gott að vinna fyrsta leik. Við tökum einn leik í einu," sagði Steini.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner