Fotbolti.net
06.07.26 - 22:22
Brynjar Ingi Erluson

Hörður farinn frá Levadiakos (Staðfest) - Með mörg tilboð á borðinu

Hörður í leik með Levadiakos

Hörður í leik með Levadiakos

Canon

Mynd: Levadiakos

Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon er að skoða næstu skref eftir að hafa yfirgefið gríska félagið Levadiakos um mánaðamótin, en hann er með tilboð frá mörgum félögum.
Hörður samdi við Levadiakos síðasta haust og gerði samning út tímabilið.

Þar skrifaði hann söguna með félaginu er það hafnaði í 6. sæti deildarinnar, sem er besti árangur í sögu félagsins og þá komst það í undanúrslit bikarsins.

Hann hefur átt í viðræðum við nokkur félög síðustu vikur og er með tilboð frá fimm liðum í grísku úrvalsdeildinni. Þá er hann einnig með tilboð frá Kýpur.

Kalamata, sem komst upp í grísku úrvalsdeildina fyrir tímabilið, vill einnig fá Hörð. Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson gekk í raðir félagsins frá Malmo á dögunum.

Hörður og Arnór þekkjast vel, en þeir spiluðu saman hjá CSKA Moskvu í Rússlandi og eru einnig liðsfélagar í íslenska landsliðinu.

Aris, sem hafnaði í 5. sæti á síðustu leiktíð, hefur einnig boðið Herði samning og sjá hann fyrir sér sem mikilvægan leikmann í framtíðinni. Fjárhagserfiðleikar Aris í gegnum árin eru ákveðinn óvissuþáttur og gera það að verkum að tvísýnt er hvort hann fari þangað.

Áhugi hefur einnig komið frá fleiri félögum í Grikklandi ásamt Svíþjóð, Tyrkland og Mið-Austurlöndum, en það skýrist á næstu dögum hvort eitthvað meira verði úr þeim þreifingum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.