Fotbolti.net
06.07.26 - 22:38
Brynjar Ingi Erluson

Martínez hættur með Portúgal (Staðfest) - Jesus líklegastur til að taka við

Martínez hættur með Portúgal (Staðfest) - Jesus líklegastur til að taka við
Canon

Mynd: EPA

Roberto Martínez er hættur með portúgalska landsliðið. Hann staðfesti þetta eftir 1-0 tap Portúgals gegn Spáni í 16-liða úrslitum HM í kvöld.
Martínez tók við portúgalska landsliðinu árið 2023 og stýrði liðinu á Evrópumótinu árið 2024.

Portúgal, sem varð Evrópumeistari árið 2016, féll þar úr leik í 8-liða úrslitum gegn Frökkum eftir vítakeppni.

Samningur Martínez gilti út þetta heimsmeistaramót, en því er nú lokið hjá Portúgal. Þjálfarinn hefur staðfest að hann hafi stýrt liðinu í síðasta sinn.

Jorge Jesus er talinn líklegastur til að taka við keflinu af Martínez, en hann var síðast hjá Al Nassr í Sádi-Arabíu.

Þar hjálpaði hann Cristiano Ronaldo að vinna deildartitilinn í fyrsta sinn áður en hann lét af störfum. Jesus hefur einnig stýrt liðum á borð við Benfica, Sporting, Al Hilal og Fenerbahce.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.