Real undirbýr 220 milljóna evra tilboð í Olise

Michael Olise hefur farið á kostum á heimsmeistaramótinu.

Mynd: EPA

Barcola fagnar marki.

Mynd: EPA

Man Utd hefur áhuga á Orlando Gill.

Mynd: EPA

Leao til Tottenham?

Real Madrid undirbýr risatilboð í Michael Olise, Liverpool og Arsenal hafa augastað á Bradley Barcola og Man Utd vill fá landsliðsmarkvörð Paragvæ. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Michael Olise (24), kantmaður Bayern Munich og franska landsliðsins, er á óskalista Real Madrid. Madrídarfélagið er sagt undirbúa risatilboð sem gæti numið allt að 220 milljónum evra. (Fichajes)
Tottenham skoðar möguleikann á að fá Rafael Leao (27), framherja AC Milan og portúgalska landsliðsins, sem er sagður opinn fyrir félagaskiptum til London. (TeamTalk)
Framtíð Bradley Barcola (23) hjá PSG er óljós. Bæði Arsenal og Liverpool hafa augastað á franska kantmanninum. (talkSPORT)
Newcastle vill styrkja miðjuna og er Angelo Stiller (25), miðjumaður Stuttgart og þýska landsliðsins, sagður efstur á óskalista félagsins. (Bild)
Manchester United hefur áhuga á Orlando Gill (26), markverði San Lorenzo og Paragvæ. (Fichajes)
Cody Gakpo (27), leikmaður Liverpool og Hollands, og Savinho (22), kantmaður Man City og Brasilíu, eru báðir á óskalista Tottenham. (talkSPORT)
Christ Inao Oulai (20), miðjumaður Trabzonspor, er eftirsóttur. Juventus, Fiorentina, Brentford, Brighton & Hove Albion og RB Leipzig vilja öll klófesta Fílabeinsstrendinginn efnilega. (La Gazzetta dello Sport)
Radu Dragusin (23), varnarmaður Tottenham, er á leið til Fiorentina á láni með kaupskyldu sem gæti numið allt að 21,4 milljónum punda ef ákveðin skilyrði verða uppfyllt. (Sky Sports)
Hull City vill fá Vanja Milinkovic-Savic (29), markvörð Napoli og serbneska landsliðsins, í sínar raðir fyrir endurkomuna í ensku úrvalsdeildina. (Corriere dello Sport)
Goncalo Inacio (24), varnarmaður Sporting og portúgalska landsliðsins, er eitt helsta skotmark Amorim og félaga í AC Milan. (Fichajes)
Trevoh Chalobah (26), varnarmaður Chelsea og enska landsliðsins, vill ganga til liðs við Inter Milan í sumar. (La Gazzetta dello Sport)