06.10.26 - 20:47
Kári Snorrason
Einkunnir Íslands - Engin svör gegn Eistum

Ísland gerði aftur jafntefli við Eistland.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hákon Arnar Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hákon Rafn var valinn maður leiksins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mikael Neville Anderson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Brynjólfur kom sprækur inn af bekknum.

Ísland gerði markalaust jafntefli við Eistland í Tallinn í C-deild Þjóðadeildarinnar fyrir skemmstu.
Ísland er á toppi riðilsins í Þjóðadeildinni með átta stig, með tveggja stiga forystu á Eistland sem er í öðru sæti. Hér að neðan má sjá einkunnargjöf Fótbolta.net úr leiknum.

Lestu um leikinn: Eistland 0 - 0 Ísland
Hákon Rafn Valdimarsson - 8, maður leiksins
Aftur er hann maður leiksins gegn Eistum. Kom liðsfélögum sínum vel til bjargar og öruggur í flest öllum sínum aðgerðum.
Daníel Leó Grétarsson - 6
Byrjaði leikinn í vinstri bakverði og leysti það þokkalega. Varð öruggari eftir að hann fór í miðvörðinn um miðbik síðari hálfleiks.
Hörður Björgvin Magnússon - 6
Spilaði rúma klukkustund og lítið hægt að setja út á frammistöðu Harðar.
Stefán Teitur Þórðarson - 6
Stóð sig heilt yfir með prýði í hjarta varnarinnar.
Guðlaugur Victor Pálsson - 6
Byrjaði ágætlega en dró af honum í seinni hálfleik. Kom með lítið sem ekkert að borðinu sóknarlega.
Ísak Bergmann Jóhannesson - 7
Sívinnandi á miðjunni og helst hann sem reyndi að taka af skarið sóknarlega.
Gylfi Þór Sigurðsson - 6
Sá rifbeinsbrotni skilaði inn fínustu vakt. Gerði fá ef einhver mistök og skapaði mikinn usla með stórhættulegu fyrirgjöfum sínum úr föstum leikatriðum.
Mikael Neville Anderson - 6
Manna líflegastur fram á við en vantaði upp á þetta fína.
Hákon Arnar Haraldsson - 5
Í svona leik þurfa leikmenn á borð við Hákon að stíga upp sóknarlega. Skemmst er frá því að segja að Hákon gerði það ekki í dag.
Orri Steinn Óskarsson - 5
Hafandi verið maður leiksins í undanförnum tveimur leikjum er óhætt að segja að frammistaða fyrirliðans hafi verið mikil vonbrigði. Virðist vera fátt um svör þegar Ísland mætir vel skipulagðri fimm manna varnarlínu.
Andri Lucas Guðjohnsen - 5
Eins og með Orra þá komst Andri lítið í takt við leikinn. Enda úr litlu sem engu að moða fyrir framherjaparið í dag. Gerði ágætlega varnarlega en það á ekki að þurfa að horfa í það í leik gegn Eistlandi.
Varamenn:
Logi Tómasson - 6
Brynjólfur Andersen Willumsson - 6