06.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hættir með Ými (Staðfest)

Mynd: Ýmir

Mynd: Ýmir
Guðjón Geir Geirsson og Þórarinn Jónas Ásgeirsson munu ekki gera nýjan samning um að halda áfram með þjálfun Ýmis, sem leikur í 3. deild karla.
Guðjón og Tóti gerðu góða hluti við stjórnvölinn hjá Ými, þeir komu liðinu upp úr 4. deildinni á sínu fyrsta ári og tókst að forðast fall aftur niður tvö ár í röð. Ýmir endaði með 26 stig eftir 22 umferðir í sumar, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.
„Eftir 3 gríðarlega skemmtileg og krefjandi ár þá hafa Tóti og Guðjón ákveðið að láta þetta gott heita," segir meðal annars í tilkynningu frá Ými.
„Tóti og Guðjón lögðu mikla áherslu á að gefa ungum leikmönnum traustið og hefur það svo sannarlega skilað sér, bæði fyrir HK og drengina sjálfa. Þetta skiptir miklu máli.
„Við, leikmenn og fráfarandi stjórn Ýmis þökkum þeim kærlega fyrir samstarfið og óskum þeim alls hins besta í næstu verkefnum."